Langbrauð með osti
Langbrauð með osti
3 dl volgt vatn
3 msk olía
2 tsk hunang eða síróp
3 tsk þurrger
1 tsk salt
1 tsk Pitsakrydd eða origano
4 dl hveiti
2 dl heilhveiti
2 msk sesamfræ
Rifinn ostur og krydd eða fræ eftir smekk.
Aðferð
Stillið ofninn á 200 gráður og blástur.
Mælið allt í skál og blandið saman.
Bætið við hveiti ef þarf og hnoðið.
Fletjið deigið út í ferkantaða köku, ekki mjög þunna.
Stáið osti og kryddi/eða fræjum á og rúllið upp.
Klippið djúpa skurði í brauðið og leggið sneiðarnar til hægri og vinstri.
Penslið með olíu og stáið kryddi eða fræjum yfir.
Látið lyfta sér í 20 mínútur og bakið síðan í 15-20 mínútur.