Pasta


Pasta verkefni

Fyrir 4.

4 stk egg

400 gr hveiti00

Aðferð

Setjið hveitið í skál eða á borðið.

Gerið hreiður í miðjuna og brjótið eggin í hreiðrið

Hrærið eggin saman með gaffli og notið síðan fingurnar til að byrja að blanda hveitinu saman við.

Þegar allt hveitið er búið að blandast saman við eggin þá þarf að byrja að hnoða deigið þar til það er slétt og fínt.

Þá er deigið sett í plastfilmu og látið standa í 20 mínútur.

Þá er deigið flatt út eins þunnt og hægt er eða þar til sést aðeins í gegnum það.

Þá er það skorið í form og soðið í 3 mínútur í söltuðu vatni.