Oddeyrarskóli

Hagnýtar upplýsingar um val nemenda


Þegar nemandi velur sér valgrein er mikilvægt að hann velti öllum möguleikum vel fyrir sér og ræði hugmyndir sínar við foreldra eða forrráðamenn. Valið á að byggja á áhuga og þörfum hvers og eins en ekki því hvert félagarnir stefna. Hafið í huga að valgreinar eru jafn mikilvægar og aðrar námsgreinar og kröfur um ástundun og árangur jafnmiklar og í öðrum greinum.

Hver nemandi á unglingastigi þarf að skila 37 kennslustundum á viku. Nemendur eru með 31 kennslustund í kjarna og þurfa því að velja sér þrjár valgreinar - hver valgrein er kennd tvær kennslustundir á viku. Næsta vetur verður ekki boðið upp á moodleaðstoð sem valgrein en nemendur geta fengið aðstoð við moodle dæmin í vinnustofum. Í vinnustofum vinna nemendur sjálfstætt að þeim verkefnum sem liggja fyrir.

Nemandi velur sér valgrein fyrir ½ vetur í senn. Oft er sama valgrein í boði fyrir og eftir áramót og er nemendum þá frjálst að velja sömu valgreinina fyrir og eftir áramót ef þeir kjósa það.

Ekki er víst að hægt verði að verða við öllum óskum nemenda um valgrein. Greinar geta fallið niður vegna lítillar þátttöku eða annarra ófyrirséðra ástæðna. Einnig getur komið fyrir að fleiri sækja í greinar en hægt er að koma að. Því þurfa nemendur að merkja við sex valgreinar á valblaðinu fyrir áramót og sex valgreinar eftir áramót. Þeir merkja nr 1 við þá valgrein sem þeir hafa mestan áhuga fyrir, nr. 2 þá sem þá langar næst mest í o.s.frv.

Samvalsgreinar eru þær valgreinar kallaðar sem eru kenndar sameiginlega fyrir nemendur úr öllum skólum bæjarins víðsvegar um bæinn. Gert er ráð fyrir að nemendur nýti sér strætisvagna til að koma sér á milli staða.

Nemendur eiga þess kost að fá félagsstarf eða nám utan skólans metið sem valgrein. Að hausti þarf að skila inn staðfestingu frá þjálfara/kennara/umsjónaraðila og foreldri/forrráðamanni á þar til gerðu eyðublaði frá skólanum. Að vori mun skóli óska eftir upplýsingum um ástundun nemandans. Nemendur og foreldrar bera ábyrgð á ástundun í metnu vali. Athugið að starfsemi utan skólans má að hámarki meta sem tvær valgreinar á viku. Foreldrar bera allan kostnað af tómstundastarfi sem óskað er eftir að fá metið með þessum hætti. Fái nemandi fjarnám við framhaldsskóla metið samsvarar tveggja eininga áfangi einni valgrein.

Nemendum og foreldrum/forráðamönnum er velkomið að hafa samband við Fjólu Kristínu deildarstjóra fkh@akmennt.is, sími 460-9550, ef eitthvað er óljóst.

Mikilvægt er að valinu sé skilað inn í síðasta lagi fimmtudaginn 20. maí 2021.


Innanskólaval

Áhugamannafótbolti

Borðspil

Enskar kvikmyndir

Félagsmálafræði

Íþróttafræði

Magic: The Gathering

Samræður

Skólahreysti

Úti er ævintýri!

Samskólaval

Afrekshópur - fótbolti

Afrekshópur - handbolti

Aðhlynning og umönnun

Athyglisverð umhverfismál

Brettapark

Dans - Jazz/Lyrical/Comercial

Fluguhnýtingar og stangveiði

Franska haustönn

Franska vorönn (framhald)

Förðun

Hársnyrtiiðn

Hjólaval

Hnefaleikaskólinn

Hnýtingar

Iðnir og tækni - Slippurinn

Klúbbaval

Körfuboltaskóli

LEGO

Leiklist

Leir, leður og mósaík

Líkamsrækt

Norður - WOD

Matreiðsla

Píla

Prjón og hekl

Rafiðnir (IGK1812)

Rafíþróttir

Rokk

Rúnk og réttindi - kynfræðslan sem vantaði

Liðkun-teygjur og slökun

Skák

Skíði og bretti

Skrautskrift fyrir byrjendur

Smíðar og hönnun

Spaðaíþróttir

Stærðfræði

Tækni, ljósastýring, sviðshönnun

Undirbúningur fyrir ökunám

Útivist og hreyfing

Útivistarval að vori

Yoga

Þjónusta/framreiðsla