SAMSKÓLAVAL
Fluguhnýtingar og stangveiði fyrir 8. – 10. bekk
Fluguhnýtingar og stangveiði fyrir 8. – 10. bekk
Námskeiðið samanstendur af hinum ýmsu þáttum stangveiðinnar. Í fluguhnýtingum er nemendum kennd undirstöðuatriðin og gerðar nokkrar algengar laxa- og silungaflugur. Lokaverkefnið er svo að hanna sína eigin flugu. Í stangveiði fara nemendur í kastkennslu með flugustöngum. Einnig fá nemendur fræðslu um allan þann búnað sem fylgir fluguveiði sem og hvernig á að umgangast náttúruna og íbúa vatna og áa. Þá vinna nemendur verkefni um veiðisvæði að eigin vali.
Kennslan verður nokkuð lotubundin því farið verður í tvær veiðiferðir sem dekka töluverðan hluta tímafjölda námskeiðsins. Gera má ráð fyrir að bóklegir tímar verði annaðhvort hálfsmánaðarlega eða vikulega á fyrir fram ákveðnum tíma yfir önnina.
Námsmat verður byggt á verkefnavinnu, lokaverkefni í fluguhnýtingum, virkni og þátttöku nemenda.
Æskilegast er að nemendur sem sækja námskeiðið hafi aðgang að flugustöngum og helst einnig öðrum veiðibúnaði.
Greinin hefur aðsetur í Brekkuskóla á vorönn á þriðjudögum kl. 14:00-15:20 og að einhverju leyti lotubundið eins og greint er frá í lýsingu.