Höfundar: Jason Buckley; Brynhildur Sigurðardóttir sjá: Óþekktarskalinn
Útfærsla fyrir leikskóla: Ingi Jóhann Friðjónsson
Aldur og hópastærð 4+, 4-5 í hópi
Viðfangsefni/umræða: Siðfræði, gott/vont, þægur/óþekkur
Markmið: Samvinna, æfing í að segja hvað manni finnst og af hverju, hlusta á aðra og bíða eftir að röðin komi að sér.
Tímalengd: 20 mín.
Undirbúningur kennara:
· Kynna sér kennsluleiðbeiningarnar vandlega.
· Notast við myndakveikjur í verkefni eða nota aðrar kveikjur.
· Skalinn er frá skást til verst (frá best til verst).
Framkvæmd:
· Skipuleggja sætaskipan í hring þar sem allir sjá hver annan
· Kennarinn metur aldur og þroska hópsins. Fyrir yngri nemendur er betra að kennarinn kynni hverja myndakveikju eina í einu og börnin raða á skalann.
· Með eldri nemendum getur kennarinn sýnt kveikjurnar í upphafi samræðunnar og börnin taka við og raða á skalann í sameiningu. Kennarinn gefur þeim þá næði og þegar skalinn er tilbúinn fer kennarinn með hópnum yfir niðurstöðuna og spyr um rök.
· Athugið eftir samræðurnar hvort nemendur vilja breyta uppröðun.
Dæmi um sókratískar spurningar
Getur þú útskýrt?
Hvað meinarðu með ...?
Geturðu komið með dæmi?
Hvernig styður þú þetta?
Eru einhverjar frekari spurningar?
Spurningar sem krefjast raka eða sannana:
Af hverju finnst þér það?
Hvernig veistu það?
Hvaða ástæður hefurðu?
Hefurðu sannanir?
Geturðu tekið dæmi um hið gagnstæða?
Spurningar sem draga fram mismunandi sjónarmið:
Geturðu orðað þetta á annan hátt?
Er hægt að líta þetta öðrum augum?
Ef einhver héldi því fram að ...?
Hvað myndi sá sem er ósammála þér segja?
Spurningar sem horfa til þess sem er falið eða leiðir af:
Hvað felst í því sem þú ert að segja?
Er þetta í samræmi við það sem þú sagðir áðan? Hverjar væru afleiðingarnar ef ...? Mætti gera þetta að almennri reglu? Hvernig mætti athuga hvort þetta er rétt?
Spurningar um spurningar/samræðuna:
Eru einhverjar spurningar um ...?
Hvers konar spurning er þetta?
Hvernig hjálpar þessi spurning okkur?
Hvar erum við stödd í rannsókninni?
Erum við einhverju nær um vandann?
(Aðalbjörg Steinarsdóttir o.fl., 2001)
1. Að segja eitthvað ljótt við einhvern, 2. Rífast um dót, 3. Öskra, 4. Rífa af, 5. Fara ekki eftir fyrirmælum, 6. Ljúga, 7. Slást, 8. Stela, 9. Að horfa á aðra segja eitthvað ljótt við einhvern og gera ekkert
Ræðið hvað er slæmt við myndirnar
· Er alltaf slæmt að gera það sem er á myndunum?
· Hvenær er það í lagi? Er t.d. alltaf rangt að ljúga? Alltaf rangt að stela? O.s.frv.
· Hvað er að vera óþekkur?
· Hvað er gott og slæmt? Tengið við kveikjurnar.
Leikur með möguleika og alhæfingar
· Hvað myndi gerast ef allir myndu alltaf ljúga?
· Hvað myndi gerast ef allir myndu alltaf stela?
· Hvað myndi gerast ef allir myndu bara segja eitthvað ljótt við aðra?/Hvernig myndi ykkur líða?
Þurfum við að hafa einhverjar reglur?
· Hvað gerist ef það eru engar reglur? Væri það gott eða slæmt?
· Hver setur reglurnar? Eru sumar reglur mikilvægari en aðrar?
Hægt er að tengja við aðrar kveikjur eins og Góður dagur.
Gerið lista yfir reglur sem eru nauðsynlegar í leikskólanum.
Hvaða reglur eru algildar? Hvaða reglur gilda alltaf?
Börnin teikna reglur sem eru í leikskólanum.
Aðalbjörg Steinarsdóttir, Anna Þórunn Hjálmarsdóttir, Helga María Þórarinsdóttir, Kristín Sigurðardóttir, Sigurbjörg Friðný Héðinsdóttir, Unnur Kristjánsdóttir, Þórdís Halldórs-dóttir og Örn Arnarson. (2001). Íslenskar barnabókmenntir og þjóðsögur sem upp-spretta heimspekilegrar samræðu meðal leikskólabarna: Þróunarverkefni leikskólans Lundarsels 1999–2001. Leikskólinn Lundarsel.
Brynhildur Sigurðardóttir. (2013). Óþekktarskalinn. Verkefnabanki Heimspekitorgsins. https://verkefnabanki.wordpress.com/2013/04/22/othekktarskalinn/