Að þjálfa virka hlustun hjá börnunum
Að efla samskiptahæfni og virðingu fyrir skoðunum annarra
Að styrkja minni og athygli
Að undirbúa börn fyrir heimspekilega samræðu
Finna hentuga staðsetningu, þar sem er næði og hægt er að sitja í hring.
Ákveðið spurninguna fyrirfram (t.d. uppáhalds litur, matur, dýr, o.s.frv.).
Æskilegur fjöldi: 4-8 börn í einum hóp, fer eftir aldri, geta verið fleiri.
Börn og kennari sitja í hring.
Kennari útskýrir leikinn: "Við ætlum að gera hlustunarleik. Hver og einn segir okkur sinn uppáhalds [lit/mat/dýr]. Svo þurfum við að muna hvað hinir sögðu."
Kennari byrjar með dæmi: "Minn uppáhalds litur er [litur]"
Hvert barn segir til skiptis sinn uppáhalds [lit/mat/dýr]
Þegar öll börn hafa tjáð sig, spyr kennarinn börnin hvað hinir sögðu, t.d. "Manst þú hver er uppáhalds liturinn hjá Jóni? O.s.frv."
Æfingin er góð upphitun fyrir samræður eða verkefnavinnu.
Ræða um hvernig við getum orðið betri í að hlusta á aðra.
Ræða um hvort uppáhalds [litur/matur/dýr] barnanna var svipaður eða ólíkur.
Hægt að ræða hvaða hlutir eru á litinn eins og uppáhalds liturinn, t.d. "Hvað er bleikt?"
Eða hvaða hlutir eru ekki í þessum lit, t.d. "Hvaða hlutir eru ekki bleikir?"

Ef börnin eru ung má byrja með fáum börnum og einfalda spurningu
Aðstoðið börn sem eiga erfitt með að muna með vísbendingum
Leggið áherslu á að það sé í lagi að gera mistök, allir eru að æfa sig