Höfundar: Byggt á verkefni eftir Berys Gaut og Morag Gaut (2011)
Útfærsla: Ingi Jóhann Friðjónsson
Aldur: 3+
Viðfangsefni/umræða: Þekkingarfræði, Raunveruleiki og ímyndun
Markmið: Að draga ályktanir, segja hvað manni finnst og komast að niðurstöðu
Tímalengd: 15-25 mín.
Undirbúningur kennara:
· Kynna sér kennsluleiðbeiningarnar vandlega..
· Prentið út myndakveikjur og plastið þær eða nota myndir í tölvu.
Framkvæmd:
· Skipuleggja sætaskipan í hring þar sem allir sjá hver annan.
· Sýnið myndakveikjur eina í einu og í röð.
Myndakveikjur
1. Ljósmynd af ketti með bindi
2. Ljósmynd af ketti
3. Teikning af ketti sem eldar
4. Gervigreindarmynd af ketti sem eldar
5. Teikning af ketti
6. Gervigreindarteikning af ketti
7. Gervigreindarmynd af ketti
8. Gervigreindarmynd af hundi í kattabúningi
9. Gervigreindarmynd af ketti að ganga
Nr. 1
Nr. 5
Nr. 9
Nr. 2
Nr. 6
Nr. 3
Nr. 7
Nr. 4
Nr. 8
Það þarf ekki að sýna allar kveikjurnar. Byrjið á að sýna mynd 1.
Er þetta mynd af raunverulegum ketti/Er hann til í alvöru?
Þegar niðurstaða er komin farið þið í næstu mynd o.s.frv.
Ef börnin svara já, spyrjið: „Hvernig vitið þið að þetta er raunverulegur köttur?“
* Möguleg svör: Hann lítur út eins og alvöru köttur, þetta er ljósmynd, ekki teikning.
Ef börnin svara nei, spyrjið: „Hvernig vitið þið að þetta er ekki raunverulegur köttur?“
* Möguleg svör: Þetta lítur ekki út eins og alvöru köttur.
* Kettir geta ekki eldað.
* Raunverulegir kettir geta ekki gert það sem er sýnt á myndinni. Þetta er bara teikning.
Samantekt: Fyrst ræðum við spurninguna sem við höfum verið að skoða:
Ljósmyndir og teikningar geta verið af raunverulegum eða ímynduðum hlutum. Sumar teikningar sýna raunverulega hluti.
· Ef það er ljósmynd er það þá raunverulegur hlutur?
· Geta teikningarnar verið af raunverulegum ketti? Er hann þá til í alvöru?
· Hvað með gervigreindarmyndir—eru þær raunverulegar?
· Stundum er erfitt að segja hvort eitthvað er raunverulegt eða ímyndað. Hvernig vitum við?
Framhaldsverkefni: Börnin teikna eða mála mynd af raunverulegum eða ímynduðum hluti.
Önnur útfærsla: Í stað katta er hægt að nota aðra hluti sem börnin þekkja og nota ljósmyndir af þeim.
Gaut, B., & Gaut, M. (2011). Philosophy for young children: A practical guide. Routledge.