Höfundar: Berys Gaut og Morag Gaut (2011)
Útfærsla og þýðing: Helga María Þórarinsdóttir
Aldur: 4-6 ára
Viðfangsefni/umræða: Siðfræði, eigingirni/sjálfselska
Markmið: Að börnin rannsaki eigingirni/sjálfselsku og hvort það sé rangt/neikvætt að vera eigingjarn/sjálfselskur?
Undirbúningur:
· Kynna sér kennsluleiðbeiningarnar vandlega.
· Taka mið af áhugasviðum nemendahópsins.
· (Val) Útvega leikmuni fyrir sögustundina (flóðhest, apa og fleiri dýr).
Framkvæmd:
· Skipuleggja sætaskipan í hring þar sem allir sjá hver annan.
· Kennari situr með nemendum í hringnum.
· Kennari segir söguna um eigingjarna flóðhestinn.
· (Val) Nota leikmuni markvisst til að styðja við frásögnina og gera hana lifandi.
Einu sinni á mjög heitum degi var Harry flóðhestur að kæla sig í vatninu. Þá komu þrír flóðhestar (í viðbót) til að kæla sig. „Þið megið ekki koma niður í vatnið, því þá er ekki nóg pláss fyrir mig" öskraði Harry. „Auðvita er nóg pláss. En við förum bara eitthvert annað svo þú getir verið út af fyrir þig", svaraði einn flóðhestanna.
Seinna þegar Harry fór til að hitta vini sína sá hann apa á leiðinni sem hafði fest annan handlegginn undir grein. „Harry, getur þú fært greinina fyrir mig?" spurði apinn. „Nei, ég meiði mig bara á því að klifra í gegnum allar þessar brotnu greinar", svaraði Harry og hélt leiðar sinnar. Þegar Harry fann vini sína sem voru að éta (borða). „Get ég fengið eitthvað?" spurði hann. „Já" sögðu þeir. Harry tók mest af matnum bara fyrir sig. „Þú verður að skilja eitthvað eftir handa okkur", sagði einn af vinum hans. „Nei, ég vill fá þetta allt sjálfur" svaraði Harry. Hann át mest allan matinn sjálfur og fór síðan sína leið.
Spurning: Hvernig var Harry eigingjarn?/Sjálfselskur? Möguleg svör:
* Hann vildi hafa laugina fyrir sjálfan sig og vildi ekki deila með öðrum.
* Hann vildi ekki hjálpa apanum þegar hann meiddi sig.
* Hann át mest allan matinn sjálfur.
Spurning: Sagan heitir Eigingjarni Flóðhesturinn. Hvað þýðir að vera eigingjarn(gjörn)?/Sjálfselsk(ur)? Möguleg svör:
* Þú skiptist ekki á né deilir með öðrum.
* Þú hjálpar ekki öðrum. Ef ég hjálpa þér eða skiptist á við þig geri ég það bara af því að ég vil eitthvað í staðinn. Er ég ekki enn þá eigingjarn?
* Þú ert eigingjarn(gjörn) ef þú deilir ekki eða hjálpar öðrum nema þú hagnist á því sjálf(ur).
* Þú hugsar bara um sjálfan þig og engan annan.
Spurning: Er rangt/neikvætt að vera eigingjarn(gjörn)?/Sjálfselskur?
Ef börnin segja já, spyrjið: Hvers vegna er rangt/neikvætt að vera eigingjarn/sjálfselskur? Mögulegar ástæður:
* Við eigum að bera virðingu fyrir öllum.
* Við verðum ekki góðar manneskjur ef við erum eigingjörn.
* Okkur líður vel þegar við hjálpum öðrum.
* Enginn vill hjálpa okkur þegar við þurfum hjálp ef við erum eigingjörn. Ályktun: Ef við hjálpum öðrum bara til að fá hjálp sjálf, er það þá öðruvísi sjálfselska?
* Við eignumst enga vini.
EÐA
Ef börnin svara nei, spyrjið: Hvers vegna er rangt að vera eigingjarn? Mögulegar ástæður:
* Stundum verður maður að setja sjálfan sig í fyrsta sæti svo maður geti gert það sem er mikilvægt fyrir mann sjálfan. Mótdæmi: Það gæti verið mikilvægt fyrir þig, en er það nauðsynlegt/áríðandi t.d. að sjá uppáhalds sjónvarpsþáttinn sinn? T.d. ef það er mjög kalt úti og þú ert með teppi til að halda á þér hita, sem er gott! En svo kemur vinur þinn og honum er kalt og hann spyr: „Má ég fá teppið?“
* Sumt verður maður að hafa fyrir sjálfan sig og ekki deila/skiptast á við aðra t.d.: ætti maður ekki að skiptast á snuðinu sínu, koddanum sínum eða stígvélunum sínum.
* Aðrir eru líka eigingjarnir, af hverju ætti ég ekki líka að vera eigingjarn? Einhver gerir eitthvað rangt— þýðir það ekki að aðrir megi líka gera rangt?
Niðurstöður
Í fyrsta lagi, endurtakið aðalspurningarnar sem þið rædduð, t.d.:
· Hvað það þýðir að vera sjálfselsk(ur) eða eigingjarn(gjörn).
· Hvort það sé rangt/neikvætt að vera eigingjarn/sjálfselskur.
Í öðru lagi, dragið saman það sem börnin sögðu í umræðunni. Mögulegar niðurstöður um hvað það þýðir að vera eigingjarn/sjálfselskur:
· Þú ert eigingjarn(gjörn) ef þú deilir ekki með öðrum.
· Þú hjálpar öðrum aðeins ef þú hagnast á því sjálf(ur).
· Þú ert eigingjörn(gjarn) ef þér er alveg sama um aðra.
·
Mögulegar niðurstöður um hvort það sé rangt að vera eigingjarn:
· Það ER rangt að vera eigingjarn af því að við eigum að virða alla.
· Það er EKKI rangt að vera sjálfsselskur þegar það er eina leiðin til að gera eitthvað sem er mikilvægt/merkilegt fyrir þig sjálfa(n).
Hugmynd af verkefnum sem hægt er að vinna í framhaldi:
Sköpun og samvinna: Tvö og tvö börn teikna saman eina mynd af einhverjum sem er eigingjarn, eða myndaröð/myndasögu með t.d. fjórum myndum sem sýnir eigingirni og afleiðingar hennar. Hvert par á síðan að ræða um myndina/myndirnar sínar.
Leikrit: Börnin leika söguna um eigingjarna flóðhestinn.
Spila: Spila og spyrja í spilaleiknum eruð þið eigingjörn?/Sjálfselsk?
Ávaxtastund: Taka samræðu hvort það sé réttlátt að kennarinn fái alla ávextina, því hann er svo svangur. Eða skipta ávöxtum jafn en spyrja: „Má ég fá tvo bita og þið bara einn?“
Gaut, B., & Gaut, M. (2011). Philosophy for young children: A practical guide. Routledge.