Höfundar: Hugmynd fengin frá Jason Buckley og Brynhildi Sigurðardóttur sjá
Útfærsla: Ingi Jóhann Friðjónsson
Aldur: 3-6 ára, Góð foræfing fyrir þau yngstu en tilvalin upphitunaræfing fyrir eldri börn.
Viðfangsefni/umræða: Í dag ætlum við að æfa okkur í að segja hvað okkur finnst og af hverju. Hlusta á aðra og bíða eftir að röðin komi að okkur.
Markmið: Efla þátttöku, æfing í að setja fram eigin skoðanir, rökstyðja þær og skipta um skoðun
Tímalengd: 10-20 mín
Undirbúningur kennara:
· Kynna sér kennsluleiðbeiningarnar vandlega.
· Prenta út myndakveikjur (eru aftast í kennsluleiðbeiningum).
· Hægt að nota talbolta, talprik fyrir þann er með orðið (sá sem er með hlutinn er með orðið).
· Vera með svæði með gott gólfpláss.
Framkvæmd:
· Í dag ætlum við að æfa okkur í að segja hvað okkur finnst og af hverju, að hlusta á aðra og að bíða eftir að röðin komi að okkur.
· Þegar allir eru tilbúnir, velur kennari myndakveikju og spyr t.d. „hvort viljið þið frekar“ eða „hvort finnst ykkur betra“ spurninga, leggur myndakveikjurnar á mismunandi staði á gólfinu og börnin fara að þeirri mynd sem þau velja. Þ.e. þau velja með fótunum, sjá einnig Að kjósa með fótunum.
· Myndaþemu
¨ Hvort viljið þið frekar búa í borg eða á sveitabæ?
¨ Hvort finnst ykkur betri epli eða appelsínur ?
¨ Hvort mynduð þið frekar vilja vera ljón eða hákarl?
¨ Hvort mynduð þið frekar vilja fá ferskt grænmeti eða hamborgara í hádegismat?
¨ Hvort mynduð þið vilja vera til á Íslandi í gamla daga eða í framtíðinni?
Muna að spyrja börnin um rök t.d. „Af hverju viltu frekar búa á sveitabæ en í borg?“
Markmiðið er að börnin segja hvað þeim finnst og hlutverk kennarans að ýta undir að þau geti orðað ástæðuna, ekki nóg að velja heldur að æfa sig að segja af hverju. T.d. „Hvort finnst þér betri, appelsínur eða Epli?“ Svarið: „Appelsínur“. „Af hverju finnst þér appelsínur vera betri?“ Svarið: „Af því að appelsínur eru súrar“
Leitast er við að fá fram skoðanir hjá öllum. Eftir þá umræðu eða skoðanaskiptin er spurt: „Er einhver sem vill skipta um skoðun?" Ef einhver skiptir um skoðun er spurt um rökin og af hverju (viðkomandi færir sig þá yfir að hinni myndinni).