ÞITT ER VALIÐ

Valgreinar í unglingadeild 2023 – 2024

 Kæri nemandi,

Viðmiðunarstundaskrá menntamálaráðuneytisins gerir ráð fyrir að nemendur í 
8. – 10. bekk séu alls 37 kennslustundir á viku í skólanum og að hluti þeirra eigi að vera valgreinar.

Hér má sjá lýsingar á þeim fjölmörgu valgreinum sem Hraunvallaskóli býður upp á skólaárið 2023 – 2024. 

Einnig er hægt að skoða hvert og eitt af listanum hér á til vinstri

Valgreinatímabilin eru þrjú: 

Í unglingadeild Hraunvallaskóla geta allir nemendur í 8. – 10. bekk valið sér allt að sex valgreinar yfir skólaárið, tvær á hverju valtímabili.

Athugið að einhverjar valgreinar eru einungis heilsársval, þ.e. að ef nemandi velur þá grein mun hann sinna námi sem þar fer fram frá hausti fram á vor og ekki verður hægt að gera neinar breytingar á því fyrirkomulagi. 

Valgreinar, aðrar en heilsárs, eru ýmist í boði á einu, tveimur eða öllum þremur tímabilunum. Hver valgrein er kennd að jafnaði í 2x40 mín sem gerir 160 mínútur á viku.

Einstaka áfangi er kenndur lengur í senn og þá í færri skipti. Tímasetningar koma fram í lýsingu á vinnudegi valgreina.

Nauðsynlegt er að lesa vel lýsingarnar á valáföngunum og velja út frá áhugasviði. Við hvetjum þig, kæri nemandi, til að ráðfæra þig við foreldra/forráðamenn og leita leiðsagnar hjá kennara eða námsráðgjafa skólans.

Námsmat er í öllum valgreinum. Gefið er lokið/ólokið fyrir valið en bókstafir fyrir hæfniviðmið. 

Valinu á að skila með rafrænum hætti eigi síðar en föstudaginn 26. maí.

Ef nemandi hefur ekki skilað inn vali á tilsettum tíma áskilur skólinn sér rétt til að setja nemendur í val þar sem er laust pláss.

Valgrein getur fallið niður m.a. ef ekki næst næg þátttaka. Einnig eru fjöldatakmarkanir í flestum valgreinum. Mikilvægt er að nemendur haki við valmöguleika á öllum tímabilum.


Aðrir möguleikar í vali:

Árshátíðarundirbúningur er í boði sem mánudags eða fimmtudagsval

Tómstundaiðkun eða vinna metin alfarið sem valgrein 

Tómstundaiðkun eða vinna metin að hluta sem valgrein

Tækniskólaval (aðeins fyrir nem. í 10. bekk) - heilsársval         

Gaflaraleikhúsið (aðeins nem. í 9. og 10. bekk) - heilsársval  

Söngleikur - heilsársval       

Skipulagt nám, íþrótta-, tómstundaiðkun og þátttaka í atvinnulífi getur verið metið sem valgrein.

Nemendur sækja valgreinar í 160 mínútur á viku (2x2x40 mínútur).

Ef forráðmenn óska eftir því fyrir sitt barn að fá íþrótta-, tómstundaiðkun eða vinnu metna sem valgrein, alfarið eða að hluta, þá þarf að senda tölvupóst því til staðfestingar til námsráðgjafa gudnyey@hraunvallaskoli.is . Þar þarf að koma fram hvað nemandi er að stunda utan skóla, tímafjöldi, nafn félags/vinnustaðar og nafn þjálfara/kennara/yfirmanns. Þetta geta verið allar íþróttir, tónlistarnám, dansnám, skátastarf, kórastarf og fleira.

Ef nemandi er í einhverju af ofangreindu í 160 mínútur á viku þarf hann ekki að vera í vali frekar en hann vill.

Mikilvægt er að taka ákvörðun um þetta strax að vori og senda tölvupóst til staðfestingar.

Í lögum um grunnskóla frá 2008 segir:

 „Heimilt er að meta skipulagt nám sem stundað er utan grunnskóla, t.d. við tónlistarskóla, sem hluta af grunnskólanámi samkvæmt nánari útfærslu í aðalnámskrá grunnskóla. Stundi nemandi slíkt nám er viðkomandi sveitarstjórn ekki skylt að standa straum af kostnaði sem af því leiðir þótt námið njóti viðurkenningar í stað skyldunáms. Jafnframt er heimilt að meta tímabundna þátttöku í atvinnulífi, félagslífi, íþróttum eða skipulögðu sjálfboðastarfi sem nám, enda falli það að markmiðum skólastarfs.“

Í aðalnámskrá grunnskóla 2011 (almennur hluti) kemur fram:

„Að ósk foreldra er heimilt að meta sem nám tímabundna þátttöku nemenda í atvinnulífi og reglubundna þátttöku í félagslífi, íþróttum eða skipulögðu sjálfboðastarfi enda falli það að markmiðum skólastarfs. Einnig er heimilt að meta skipulagt nám, sem stundað er utan grunnskóla, til valgreina, t.d. nám við framhaldsskóla, listaskóla og málaskóla. Í hverju tilviki metur viðkomandi skóli umfang slíks náms og gæta þarf jafnræðis í afgreiðslu mála. Við það skal miðað að það nemi ekki meira en sem svarar 160 mín. vikulega á hverju skólaári á unglingastigi og er þá heimilt að meta slíkt til valgreina hjá viðkomandi nemendum.“

 

Valgrein utan skóla getur ekki komið í staðin fyrir kjarnagreinar í skóla. Til dæmis er ekki hægt að sleppa skólaíþróttum (íþróttir og sund) þrátt fyrir miklar íþróttaæfingar. 

 Valinu á að skila með rafrænum hætti eigi síðar en föstudaginn 26. maí. 

ATH: Ef nemandi hefur ekki skilað inn vali á tilsettum tíma, eða forráðamaður sent tölvupóst um undanþágu frá vali, áskilur skólinn sér rétt til að setja nemendur í val þar sem er laust pláss.

Valgrein getur fallið niður m.a. ef ekki næst næg þátttaka. Námsráðgjafi aðstoðar nemendur í þeim valáföngum, við að skrá sig annað val í staðinn.  Einnig eru fjöldatakmarkanir í flestum valgreinum. Fyrstir skráðir, fyrstir fá.

Ekki er í boði að breyta vali eftir að fyrsta valtímabil hefst. 

 

Með góðri kveðju og ósk um gott samstarf

Guðný Eyþórsdóttir  - Námsráðgjafi

Hjördís Bára Gestsdóttir - Deildastjóri