Um Stapamix

Samþætt starf í 7.-10. bekk

Stapamix er heiti á þverfaglegu námi sem unnið er í 7.-10. bekk Stapaskóla. Verkefni eru skipulögð í þemum og setja mikinn svip á starf unglingadeildarinnar.

Staður og tími

Stapamix er sex kennslustundir á viku (3 x 80 mínútur) sem festar eru í stundaskrá.

Verkefni eru mis stór. Stapamix verkefni getur verið allt frá því að taka bara eina tvöfalda kennslustund upp í það að ná yfir þriggja vikna tímabil (18 kennslustundir)

Kennt er í tveimur tvenndum, þ.e. tveimur stórum kennslustofum sem hvor um sig hýsir tvo árganga í skólanum. Í innlögnum er allur nemendahópurinn kallaður saman í aðra tvenndina eða sest á sal skólans.

Þegar verkefnavinna nemenda er komin af stað dreifist starfið um allt húsnæði skólans. Gangar eru mikið notaðir, þar eru borðkrókar og sethólf sem nemendum finnst gott að vinna í. Smiðjukennarar (list- og verkgreinar) bjóða hópa velkomna þegar tök eru á og verkefni þarfnast.

Lengri og styttri vettvangsferðir eru líka fastur liður í Stapamix verkefnum.


Nemendur

Nemendur í 7.-10. bekk taka þátt í Stapamix verkefnum. Skólaárið 2021-2022 eru um 115 nemendur í þessum hópi.

Meðal markmiða samþættingar-innar er að nemendur kynnist vel þvert á árganga, læri að vinna með ólíku fólki og taki að sér leiðtogahlutverk í ólíku samhengi.

Stapamix verkefni eru margvísleg og unnin eftir ólíkum leiðum. Lítil einstaklingsverkefni eru af og til lögð fyrir en algengara er að nemendur vinni í minni eða stærri hópum.

Ef verkefni varða viðkvæm mál eða þarfnast þess sérstaklega að traust ríki milli nemenda er raðað í hópa innan árgang og jafnvel með vinavali. Í öðrum verkefnum er nemendum raðað í hópa þvert á alla árgangana og þá er eldri nemendum oft falin ákveðin ábyrgð og þeir settir í leiðtogahlutverk í vinnunni.

Kennarar

Stapamix verkefni eru skipulögð og kennd af teymi kennara á unglingastigi. Umsjónarkennarar 7.-10. bekkjar og fagkennarar í náttúrufræði og samfélagsfræði taka þátt.

Kennarateymið tekur sameiginlegar ákvarðanir um hvaða verkefni eru unnin. Hver kennari ber ábyrgð á ákveðnu fagsviði í sínu daglega starfi og hann gætir þess að þessu fagsviði sé vel sinnt þegar valin eru hæfniviðmið og gengið frá námsmati í Stapamix verkefnunum.

Kennarar skiptast á að vera ábyrgðarmenn verkefna. Yfirleitt bera tveir kennarar ábyrgð á hverju verkefni og þeirra hlutverk er að halda utan um skipulag og undirbúning, deila út verkefnum til annarra kennara, sjá um innlagnir, námsmat og fréttaflutning að afloknum verkefnum.

Kennarahópurinn þéttir hópinn með föstudagssamveru. Þá setjast allir saman eftir kennslu, skiptast á að koma með léttar veitingar, spjalla, hjálpast að við að klára verkefni vikunnar, spila, horfa saman á athyglisvert eða skemmtilegt efni og gera annað sem léttir lundina og hjálpar öllum að fara glaðir í helgarfrí.

Kynningar á Stapamixi

Samþætting og sköpun í framsæknu skólaumhverfi_erindi 12.8.2022.pdf

Samþætting og sköpun í framsæknu skólaumhverfi

Erindi Stapamix teymisins
á ráðstefnu Félags áhugamanna um skólaþróun
sem haldin var 12. ágúst 2022.

Lesum Íslendingasögur fyrir lífið_Akureyri sept 2022.pdf

Lesum Íslendingasögur fyrir lífið

Erindi Stapamix teymisins á ráðstefnunni Læsi fyrir lífið sem haldin var við Háskólann á Akureyri
10. september 2022