Inna er upplýsingakerfi skólans sem heldur utan um alla þætti náms hjá nemendum, m.a. vitnisburð, einkunnir, ástundun, mætingu og námsferil. Inna er einnig kennslukerfi skólans.
Nota þarf rafræn skilríki eða Íslykil til að skrá sig inn á Innu.
Aðstandendur ólögráða nemenda fá einnig aðgang að Innu, og nemendur eldri en 18 ára geta sjálfir veitt aðstandendum áframhaldandi aðgang að Innu, sjá leiðbeiningar.
Mikilvægt er að nemendur gæti þess að netföng þeirra og símanúmer séu rétt skráð í Innu.
Til þess að skrá sig inn á Innu þarf fyrst að nota rafræn skilríki eða Íslykil. En þegar þið eruð búin að skrá ykkur inn einu sinni getið þið tengt O365 aðganginn ykkar, eða google aðganginn ykkar við Innu og skráð ykkur inn með Google eða Office hnöppunum eftir það. Sjá myndband að neðan.