Þetta verkefni er byggt á verkefni Hildar Rudolfsdóttur í Garðaskóla.
Nemendur greina myndir á Instagram og setja niðurstöðurnar upp í töflu í Numbers.
• Að nemendur geri sér grein fyrir hvernig „fræga fólkið" nýtir sér samfélagsmiðla og í hvaða tilgangi.
• Nemendur skoða einnig hvort að þessi einstaklingar séu að auglýsa vörur og ef svo er hvort það sé augljóst að um auglýsingu sé að ræða.
Nemendur para sig saman til að vinna að verkefninu og búa svo til töflu í Numbers með þessum fimm dálkum:
Dæmi:
Katrín Tanja Davíðsdóttir - 50% - 20% - 25% - 5%
Hvert nemendapar velur að skoða Instagram síðu einhvers frægs einstaklings. Gott að nemendur velja ekki allir sama einstaklinginn til að fá meiri breidd í umræðurnar í lokin. Hér er listi yfir vinsælustu Instagram stjörnurnar á alþjóða vísu.
Nemendur flokka 30-40 síðustu myndir einstaklingsins í þá fjóra flokka sem þar koma fyrir (persónulegt, æfing/undirbúningur, atvinna og annað). Nemendur mega flokka fleiri myndir ef þau vilja en flokkunin á ekki að taka mikið lengur en 15 mínútur. Þegar flokkun er lokið skal reikna út hlutfall (%) hvers flokks hjá viðkomandi einstaklingi.
Dæmi um persónulegt: Myndir af einstaklingnum með makanum og eða fjölskyldu, sumarleyfismyndir, mynd af gæludýri, út að borða með vinum eða á skemmtistað o.s.frv.
Dæmi um æfingu/undirbúning: Myndir af undirbúningi/æfingu í ákveðinni íþrótt eða sýningu, fyrir tónleika o.s.frv.
Dæmi um atvinnu: Myndir af einstaklingnum að tala við aðdáendur, úr tónleikaferð, úr keppnum atvinnumanna í íþróttum, rauða dreglinum þegar leikarar eru að kynna myndir o.s.frv.
Dæmi um annað: Myndir sem passa ekki í hina flokkana þrjá.
Þegar nemendur hafa lokið greiningu og skráningu eru niðurstöðurnar settar fram í myndriti. Spurningar til að hafa í huga
a. Er hægt að sjá eitthvað mynstur í hlutföllum hvers flokks á milli einstaklinga?
b. Eru sömu hlutföllin almennt, sömu hlutföllin eftir því hvað einstaklingurinn starfar við eða bara alls ekki?
Fyrirmæli fyrir greiningu á hugsanlegum auglýsingum á samfélagsmiðlum.
1. Látið nemendur fara aftur yfir sömu myndir og áður en merkja núna við hve oft þau telja að um auglýsingu á vöru eða þjónustu sé að ræða. Nemendur skulu einnig skrá hjá sér hvað þau telja að verið sé að auglýsa með viðkomandi færslu. Gefið um 10-15 mínútur í þennan lið.
2. Bætið við „Auglýsing“ í auða dálkinn aftast í töflunni, ásamt hlutfallinu frá hverjum hópi.
Spurningar til að hafa í huga eftir að tölurnar eru komnar inn:
Er augljóst að um auglýsingu sé að ræða?
Finnst nemendum hlutfallið á hugsanlegum auglýsingum hátt eða lágt fyrir mismunandi einstaklinga?
Hvaða vörur er helst verið að auglýsa samkvæmt greiningunni?
Sjá nemendur eitthvað mynstur t.d. á milli þeirra sem starfa í sömu atvinnugrein (leikarar, íþróttamenn, söngvarar)?
Finnst nemendum almennt mikið um auglýsingar á samfélagsmiðlum (Instagram, Snapchat, Facebook...)?
Eru margir nemendur sem leita sérstaklega eftir að fylgja einstaklingum sem eru styrktir í gegnum auglýsingar? Ef já, hverjum eru þeir helst að fylgja?
Telja nemendur sig almennt vita hvenær verið er að auglýsa ákveðna vöru eða þjónustu á samfélagsmiðlum? Er það alltaf hægt?