2. bekkur

Í 2. bekk er lögð áhersla á Ábyrga netnotkun og netöryggi

Líkt og í 1. bekk þarf að kenna og rifja upp með nemendum í 2. bekk umgengni við spjaldtölvur sem miða að sjálfstæði í vinnubrögðum og fræða þau áfram um örugga netnotkun.

Sjálfstæði er lykilfærni sem við hvetjum til að sé þjálfuð á þessu aldursstigi. Kennarinn komi upp ákveðinni umgengnisvenjum um spjaldtölvur meðal nemenda í skólastofunni. Sett verði upp kerfi og verklag til að stýra notkuninni, hjálpa nemendum að skilja væntingar okkar til umgengninnar og hvetja þau til sjálfstæðra vinnubragða.

Þessi vinna tekur tíma og það þarf að gera ráð fyrir henni í kennslustundum þar sem nota á spjaldtölvur. Hún er auk þess nauðsynleg kennsla til að þróa sjálfstæð vinnubrögð nemenda í öllu námi og öllum námsgreinum.

Í kaflanum Fyrir alla árganga má finna helstu undirstöðuatriði stafrænnar kennslu á þessu aldursstigi. Þau eiga líka við um alla tölvunotkun og er sett upp í tvö “námskeið” eða lotur. Sniðugt er að fara í gegnum slíka lotu í byrjun hvers skólaárs á þessu aldursstigi. Verkefnin má aðlaga að hverjum bekk og aðstæðum hverju sinni. Rifjið upp og endurtakið kennsluna þar til nemendur hafa tileinkað sér innihaldið og sé þeim orðið eðlislægt í umgengni við tæknina.

Þegar þessar lotur eru kenndar þarf að muna að:

  • Setja verkefnin í samhengi við námsefni/námsgreinar eða lotur þannig að bekkurinn upplifi samhengi á milli náms og tækni.

  • Velja öpp sem hægt er nota í fleiri en einum tilgangi. Teikniforrit til að teikna hugsanir þeirra, svara spurningum, deila stærðfræðisýnikennslu, teikna og segja frá í leiðinni, útskýra myndir með texta, sögugerð. Slík forrit þarf að kynna og kenna snemma á skólagöngunni og viðhalda þekkingunni.

  • Gera bekkjarsáttmála árlega með nemendum (tryggja eignarhald). Hengið sáttmálann upp á veggspjald í stofunni sem auðvelt er að vísa í.

Jafnvægi í stafrænni notkun og vellíðan

Stundir án tækja

Lykilspurning: Af hverju er mikilvægt að eiga stundir án tækja í lífinu?

Glærur

Reglur um stundir án tækja fyrir fjölskylduna - vinnublað

Stoppa og hugsa - vinnublað

Friðhelgi og öryggi

Þetta er einkamál

Lykilspurning: Hvaða upplýsingum ætti ég ekki að deila þegar ég nota netið?

Glærur

Þetta er einkamál! - Verkefnablað

Þetta er einkamál! - verkefnablað (TEACHER VERSION)

Leikurinn - Lestrarbók

Lestrarbókin Leikurinn er ætluð börnum í 2. bekk grunnskóla. Þar er fjallað um netnotkun. Bókin er hluti af þriggja bóka flokki og er útgefin af Saft og Heimili og skóla.

Tilgangur með lestrarbókunum er að kynna netið fyrir yngstu lestrarhópunum. Jafnframt er bókunum ætlað að vera leið fyrir foreldra og starfsfólk í leik- og grunnskólum til að fræða börn á einfaldan hátt um jákvæða og örugga netnotkun. Aftast í hverri bók eru leiðbeiningar fyrir foreldra/kennara um atriði sem varða netöryggi barna og hvernig nálgast megi umræðuna við börn um netið og góða netsiði. Upplagt er að láta þessi heilræði fylgja með í vikupósti til foreldra eftir að efni bókarinnar hefur verið rætt í skólanum.

Netöryggi

Hér er fjallað um netöryggi á svipuðum nótum og í Ævintýri kafteins Kjærnested.

Veggspjald með 1,2,3 reglunni.

Vinnuseðill fyrir nemendur.

Stafrænt fótspor og auðkenni

Stafrænir slóðar

Lykilspurning: Hvaða upplýsingar eru Í LAGI sem hluti af stafræna fótsporinu þínu?

Glærur

Stafrænir slóðar - Verkefnablað

Stafrænir slóðar, myndarammar - verkefnablað

Að sýna skynsemi á netinu

Kennslustundin byggist á umfjöllun og umræðum í upphafi þar sem gefin eru ráð um hvernig hægt er að vera öruggur á netinu - sjá hér.

Í lokin gæti kennari útbúið litla rafræna könnun með helstu atriðum kynningar og notað til þess Quizizz eða Kahoot.

Sambönd og samskipti

Hver er í þínu netsamfélagi?

Lykilspurning: Hvað er internetið? Hvernig myndir þú útskýra netið fyrir litlu systkini, frændsystkini eða vini?

Glærur

Mitt tengslanet - verkefnablað

Netorðin 5

SAFT hefur gefið út netorðin 5 á segli allt frá árinu 2013. Þessi einföldu skilaboð hæfa vel sem innlögn í 2. bekk. Skilaboðin eru sett upp á einfaldan hátt sem hentar einkar vel og eru góð áminning. Netorðin fimm eru leiðbeiningar sem aðstoða nemendur við það að tileinka sér heilbrigða og örugga netnotkun og eru með það að markmiði að stuðla að betri netmenningu. Netorðin eru gefin út af Samfélag, fjölskylda og tækni (SAFT).

Deila má netorðunum fimm og leiðbeiningunum með foreldrum þegar farið hefur verið yfir þau með nemendum. Einnig mætti hugsa sér stuttmyndagerð og/eða endursögn, frétta- eða umræðuþátt eða leikþátt í rafrænum námsforritum.

Neteinelti, stafræn vanlíðan og hatursorðræða

Segjum STOP við slæmri nethegðun

Lykilspurning: Hvað eigum við að gera ef einhver er að vera vondur á netinu?

Glærur

Segjum STOP við slæmri nethegðun - verkefnablað

Ævintýri kafteins Kjærnested á Nethafinu (7 til 9 ára)

Sláist í för með kafteini Kjærnested og Emblu tölvuhundi þegar þau sigla frá netbæ til Norðureyjar. Á leiðinni verða þau vör við sjóræningjaskip og hitta ókunnugt fólk á Norðurey sem vill nálgast persónulegar upplýsingar um Emblu og kafteininn. Þau þurfa að bregðast við leiðinlegum textaskilaboðum til Emblu frá kunningja hennar Rebba ref í Netbæ.

Frétta og miðlalæsi