Verkefni 3 - ÞRÍVÍDDARPRENTARI
Hannað fyrir þrívíddarprentara - skönnun, teikning og prentun
ANNAÐ
NÁMSMAT
AÐALMARKMIÐ
Að kynna sér vel eitt þrívíddar forrit.
Að læra á þrívíddarprentarann.
Að læra að skanna inn í þrívídd.
Að skrásetja allt ferlið.
Við metum verkefni tvö sem 6 stig.
2 stig fyrir að vinna þrívíddarteikningu í tölvunni.
1 stig fyrir að skanna inn í þrívídd.
1 stig fyrir að prenta út í þvívíddarprentaranum.
2 stig fyrir skrásetningu í verkdagbók.
1 auka stig fyrir áhuga og góð vinnubrögð.
Það sem helst kemur fólki á óvart varðandi þrívíddarpentun er hversu hæg og seinleg hún er. Sem dæmi þá er 7 cm há “selfí” ca. eina klukkustund að prenta út. Oft er því verið að setja prent af stað að kvöldii og látið prenta út yfir nótt.
Við mælumst því til í þessum hluta námsins að við höldum stærð hlutanna í hófi.
Efniskostnaður í þessum hluta verður einhver þar sem hver og einn borgar fyrir það plast sem hann notar. En satt best að segja er sá kostnaður hverfandi, grammið á plastinu kostar 10 krónur. Þetta þýðir að kostnaður fyrir lítinn hlut er ca. 100-500 kr.
Hönnunarferli fyrir þrívíddarprentun:
Verkefnið fyrir þrívíddarhlutann er stutt og laggott:
Veljið eitt þrívíddarteikniforrit og teiknið upp lítinn hlut.
Skannið inn einn hlut að eigin vali.
Prentið annan hvorn hlutin út.
Gott er að hafa eftirfarandi hluti í huga þegar á að prenta út í þrívíddarprentara:
Hlutir þurfa að vera alveg lokað form. Það þarf því oft að laga til form sem hafa verið skönnuð inn til að tryggja að hvergi sé gat eða rauf. Til eru forrit sem taka inn módelið og maður ýtir á gera við og það lokar forminu fyrir mann.
Þrívíddarteikningarnar eru vistaðar sem .obj eða stl. (obj = object file og stl = Standard Tessellation Language).
Þrívíddarteikniforrit:
Forritin sem hér eru upptalin eru af mjög ólíkum toga. Sum eru einstaklega einföld og önnur þarf maður mikinn tíma til að setja sig inn í. Öll forritin eru frí. Við biðjum ykkur nú að velja eitt þeirra til að vinna í.
OnShape er frítt netforrit. Það er enn í Beta útgáfu og hægt að skrá sig strax til að prófa. Netforrit þýðir að það þarf ekki að hlaða neinu niður eða setja eitthvað upp, þetta virkar beint í vefvafranum. Þarna er hægt að deila verkefninu/teikningunni með öðrum, þ.e. margir geta verið að vinna í sama skjalinu í einu. Við þorum að veðja á að þetta sé FRAMTÍÐIN. Við erum nýbúnar að skrá okkur og rétt byrjaðar að fikta…. OnShape kennsluefni.
TinkerCad - frítt frá Autodesk, ótrúlega einfalt þrívíddarforrit sem maður er snöggur að læra á. Það er bara að opna forritið og byrja að leika sér. Forritið vinnur með allskyns þrívíddarform. Þegar maður byrjar að nota forritið er maður leiddur í gegnum fyrstu skrefin. Það er líka til fullt af góðu kennsluefni á netinu. TinkerCAD kennsluefni.
123D Design er frítt frá Autodesk, mjög einfalt þrívíddar teikniforrit. Svolítið eins og smækkuð útgáfa af risa teikniforriti. 123D Design kennsluefni.
123D Sculpt - líka frítt frá Autodesk. Eins og nafnið gefur til kynna þá getur maður unnið þrívíddarteikninguna í tölvunni rétt eins og maður væri að móta beint í leir. Æðislegt forrit, hér er hægt að gleyma sér tímunum saman. Það er reyndar eingöngu fyrir spjaldtölvur, þ.e. snertiskjái. Svo ef þið búið svo vel að eiga eina slika þá skorum við á ykkur að prófa. 123D Sculpt kennsluefni.
Sculptris Alpha 6 frítt frá pixologic. Þetta forrit virkar rétt eins og 123D sculpt, hér mótar maður teikninguna eins og hún væri leir. Þetta forrit er hins vegar hugsað fyrir tölvur. Geggjað gaman að leika sér hér. Sculptris kennsluefni.
Shapeshifter er frá Autodesk og fellur undir sandkassaverkefni hjá þeim (þ.e. er í þróun) Þetta er mjög sniðugt forrit. Þar velur maður sér byrjunarform og framkvæmir svo ýmsar breytingar á því með fikta í allskyns valstikum. Þetta hreynlega gerist ekki einfaldra! ShapeShifter kennsluefni.
Blender er frítt risa teikniforrit. Það er bæði hægt að teikna og svo líka hægt að gera hreyfimyndir bíómyndastæl. Þetta þýðið að það er ansi viðamikið forrit og lærdóms-kúrfan frekar brött. Mikið að taka inn hratt til að komast eitthvert. Það frábæra við Blender að það er mikið til að góðu kennsluefni á netinu og það er stórt samfélag notenda sem skiptist á trikkum og tixum. Blender kennsluefni.
Hér er listi yfir önnur forrit sem kosta töluverða peninga en oft hægt að fá frítt í 30 daga. Rhino, 3Dstudio, Maya, AutoCad (nemar geta fengið AutoCad, Maya og 3DStudio Max frítt í 3 ár.) Rhino er uppsett á tölvunum í Fab labinu.
Þrívíddarskönnun:
ReconstructMe er frítt forrit. Það getur nýtt myndavélar á borð við Kinetica (myndavélin sem fylgir með XBox leikjavélinni). Slíkar myndavélar nema fjarlægð, og virka eins og hálfgerður sónar. Í forritinu er t.d. einföld “selfí” stilling, þá þarf maður bara að snúa sér hægt 360 gráður og forrtitið skilar þvívíddarmódeli tilbúnu fyrir prent. ReconstructMe kennsluefni.
123 Catch er frítt frá Autodesk. Það er bæði til fyrir snjalltæki og svo tölvur. Hér einfaldlega gengur maður hringinn í kringum hlutinn og tekur röð ljósmynda. Myndirnar sendir maður svo upp á ský og þar reikna þeir og teikna og senda svo til baka þrívíddarmódel. Myndirnar þufa vera u.þ.b. 40 og maður þarf að helst að búa til einhverskonar merkingar til að hjálpa reikninvélinni að átta sig á umhverfinu, því hún nýtir allar upplýsingar úr umhverfinu til að átta sig á hlutnum. Til að gera módelið svo klárt fyrir þvívíddarprentun þarf maður að laga það til í öðru forriti á borð Mesh Mixer eða MeshLab. 123D Catch kennsluefni.
Mesh Mixer er frítt frá AutoDesk, það er gott til að hreinsa og laga til það sem maður hefur skannað inn. Mesh Mixer kennsluefni.
MeshLab er líka frítt og hugsað til að laga til þvívíddarlíkön fyrir prent. MeshLab kennsluefni.
Roland Modela - Það er hægt að skanna littla hluti með Modela fræsaranum. Það er mjög seinlegt ferli en mjög nákvæmt! Vélina þarf að setja sérstaklega upp og hún svo skannar með því að reka niður hálfgerðan títiprjón og snerta þannig allt yfirborð hlutsins. Þetta þýðir að það er bara hægt að skanna eina hlið í einu og vélin getur ekki skannað þar sem eru krækjur eða hengjur. Roland Modela kennsluefni.
Þrívíddarprentari:
Í Fab labinu hér í Reykjavík eru tveir þrívíddarprentarar:
The Makerbot Replicator 2 sem notar PLA plast sem er jurtaplast/kornsterkja sem leysist upp í heitu vatni.
The Makerbot Replicator 2X sem notar ABS plast sem er sterkara. Replicator 2x er með lokaðar hliðar og hitaplötu svo plastið tolli betur við plötuna. Það er vandasamara að prenta út ABS plastinu, þ.e. aðeins meiri líkur á mistökum. 2X getur prentað út í tveimur litum í einu.
Þrívíddarprentunum fylgir hugbúnaður sem útbýr skjöl tilbúin til prentunar. Það er frítt og hægt að setja upp á sína tölvu. Í forritunu getur maður stillt til hæð og breidd hlutanna, maður getur raðað nokkurm hlutum í einu sem á að prenta. Þar getur maður hakað við stillingar eins og raft (fleki undir módelið) og supports (stuðningur undir hengjur, því prentarinn getur ekki prentað í lausu lofti.)
Innblástur:
Það eru stórkostlegir hlutir að gerast þróun í þrívíddarprenti og enginn skortur á innblæstri. Hér er síða á Pinterest sem við tókum saman:
https://www.pinterest.com/sigrhelga/3d-printing/
Hér er svo linkur á Shapeways. Það er fyrirtæki sem sérhæfir sig í þrívíddarprenti. Þangað getur maður sent skjölin sín og fengið útprentin send heim. Þeir prenta í órtúlegustu efni, sifur, keramik, vax og margt margt fleira.