Samskipti og sambönd/Fjölskyldur
Mismunandi fjölskyldur.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
sagt frá mismunandi samsetningum á fjölskyldum (t.d. tveir foreldrar (margvíslegar kynhneigðir), einstætt foreldri, stórfjölskylda, kjarnafjölskylda, fósturfjölskylda, tvær fjölskyldur (fjórir foreldrar).
talað um og sýnt mismandi fjölskyldumynstrum virðingu.
sýnt hvernig megi sýna virðingu í verki gagnvart margvíslegum fjölskyldumynstrum.
Mismunandi þarfir og hlutverk í fjölskyldum.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
greint mismunandi þarfir og hlutverk fjölskyldumeðlima.
metið það hvernig fjölskyldumeðlimir sinna hvor öðrum á margvíslegan máta, jafnvel þó þeir vilji það ekki alltaf eða geti það ekki.
greint frá hverjar þarfir hans og hlutverk er innan eigin fjölskyldu.
Ójafnvægi milli kynja endurspeglast oft í hlutverkum og ábyrgð fjölskyldumeðlima.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
greint frá mismunandi hlutverkum og ábyrgð karla og kvenna innan fjölskyldunnar.
lýst því hvernig þessi mismunandi hlutverk geti haft áhrif á hvað sé gert og ekki gert innan fjölskyldunnar/heimilis.
skynjað að ójafnvægi milli kynja og kynjahlutverka hefur áhrif á hlutverk og ábyrgð meðlima innan fjölskyldunnar.
endurspeglað eigið hlutverk og tilfinningar sínar á því hvað felist í hlutverkum og ábyrgð karla og kvenna innan fjölskyldunnar.
Fjölskyldumeðlimir gegna mikilvægu hlutverki í að koma áfram gildum til barna.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
greint frá því hvað gildi eru.
listað upp gildi sem hann sjálfur og fjölskylda hans telja mikilvæg.
greint frá því hvernig gildi fjölskyldna hafa áhrif á gildi barna.
sagt frá sínum eigin persónulegu gildum.
Vinir, fjölskylda, kennarar og samfélag geta og ættu að aðstoða hvort annað.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
lýst því hvað felist í traustverðugum fullorðnum einstaklingi.
lýst ólíkum leiðum sem fólk getur gert til að hjálpa hvort öðru.
áttað sig á að allir hafa rétt á því að njóta verndar og stuðnings.
lýst ólíkum leiðum til að leita aðstoðar og spyrja traustverðugan fullorðinn aðila um hjálp.