Gildi, réttindi, menning og kynferði
Gildi og framkoma sem við lærum af fjölskyldu og samfélögum er uppspretta þess sem við lærum um kyn, kynferði og kynhneigð og hafa áhrif á okkar persónulegu hegðun og ákvarðanatöku.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
borið kennsl á þau gildi og þá framkomu sem fullorðnir, fjölskyldur og samfélög sýna sem sýna og kenna öðrum um kyn, kynferði og kynhneigð.
lýst leiðum sem sumir foreldrar/forráðamenn fara til að kenna eða sýna sín gildi gagnvart börnum sínum.
lýst þeim gildum sem hafa áhrif á hugmyndir okkar um kynhlutverk og jafnræði.
sagt frá því að gildi og framkoma fjölskyldna og samfélaga hefur áhrif á hegðun og ákvarðatöku innan þeirra.
endurspeglað eitthvað gildi sem hann hefur sjálfur lært frá sinni fjölskyldu.