Þú ert skipuleggjandi af keppni og ert komin á fund með hönnuði sem ætlar að hanna verðlaunagrip fyrir 1.sæti
Þú þarf að ákveð og segja hönnuðinum:
Hvaða keppni er þetta? Maraþon, Formúla 1, skák, krulla...
Hvernig er formið? Bikar, medalía eða eitthvert annað
Fær hönnuðurinn fjrálsar hendur eða ert þú með hugmynd sem þú vilt að hann framkvæmi?
Þú ert hönnuður sem er kominn á fund með skipuleggjanda keppninar sem vill að þú hannir verðlaunagrip fyrir 1.sætið. Þú þarf að hlusta vel á hvað skipuleggjandi vill og skrá hjá þér þær upplýsingar sem koma fram.
Þú getur spurt spurningar til að fá skýrari mynd af því sem viðskiptavinurinn vill.
Heitir keppnin eitthvað?
Eru þetta farandsverðlaun (notuð sömu ár eftir ár)?
Á nafn vinningshafa að koma fram?
Þegar búið er að funda skipti þið um hlutverk og endurtakið
Notaðu skrefin úr hönnunarferlinu til að forma hugmyndina þína
Búðu til hugakort þar sem þú veltir fyrir þér mismunandi útfærslun af verðlaunagripum og skrifar niður þau atriði sem komu fram á fundinum
Teiknaðu þrjár mismunandi hugmyndir af verðlaunagrip og veldu svo bestu til að halda áfram með
Teiknaðu bestu hugmyndina þína með aðstoð tölvustuddrar hönnunarforrita. Notaðu myndskeiðin hér á síðunni þér til stuðnings
Skoðaðu hönnunina þína stafrænt með viðskiptavininum og leggið mat hvort að það þurfi að breyta eða bæta einhverju
Gerðu viðeigandi breytingar til að bæta hönnunina. Legðu hana aftur fyrir viðskiptavinin og endurtaktu þar til að allir eru sáttir
Þegar hönnunin er tilbúin er komið að framleiðslu. Ein valmöguleiki er að nota þrívíddaprentara til að prenta út hönnunina