Notaðu þætti hönnunarferils til að forma hugmyndina þína
Skoðaðu mismunandi gerðir af PEZ köllum
Teiknaðu þrjár mismunandi hugmyndir af PEZ skreytingu og veldu svo bestu hugmyndina til að halda áfram með
Sæktu STL skránna hér neðst á síðunni og horfðu á myndskeiðið til að sjá hvernig á að færa skránna inn í Tinkercad. Hannaðu og búðu til skreytingu á PEZ kallinn með því að byggja ofaná grunninn sem þú fluttir inn. Notaðu myndskeiðin hér á síðunni þér til stuðnings við að teikna upp hönnunina þína.
Skoðaðu hönnunina þína stafrænt og legðu mat hvort að það þurfi að breyta eða bæta.
Þú getur notað viðbótarveruleikann (AR viewer) til að skoða hönnunina þína betur. Skoðaðu myndskeiðið hér að neðan til að sjá hvernig þú getur nýtt þennan eiginleika
Gerðu viðeigandi breytingar til að bæta hönnunina
Þegar allt virkar sem skildi er komið að framleiðslu. Ein valmöguleiki er að nota þrívíddaprentara til að prenta út vasann.
Myndskeiðið sýnir hvernig þú flytur stl skránna inn í Tinkercad
Þegar þú ert að meta hugmyndina þína getur verið áhugavert að skoða hana með astoð AR viewer, eða viðbótarveruleika. Viðbótarveruleikinn tekur hönnun þína og staðsetur á ákveðinn stað sem þú velur með mydnavélinni þinni. Þannig er raunheimurinn bakgrunnurinn og hönnunin þín sett inn sem sýndarveruleiki.