Notaðu þætti hönnunarferils til að forma hugmyndina þína
Búðu til hugakort þar sem þú veltir fyrir þér öllu sem tengist vasanum.
Hugaðu að tilgangi, er vasinn fyrir afskorin blóm, þurrkaða vendi eða t.d matjurtir?
Veltu fyrir þér hvort vasinn eigi að standa á borði, vera fastur á vegg, á fótum eða jafnvel hangandi.
Skrifaðu niður allt sem þér dettur í hug.
Hvernig set ég upp hugakort?
Teiknaðu þrjár mismunandi hugmyndir af vösum og veldu svo bestu hugmyndina til að halda áfram með
Teiknaðu bestu hugmyndina þína með aðstoð tölvustuddrar hönnunarforrita. Notaðu myndskeiðin hér neðst á síðuni þér til stuðnings.
Skoðaðu hönnunina þína stafrænt og legðu mat hvort að það þurfi að breyta eða bæta.
Þú getur notað viðbótarveruleikann (AR viewer) til að skoða hönnunina þína betur. Skoðaðu myndskeiðið hér að neðan til að sjá hvernig þú getur nýtt þennan eiginleika
Gerðu viðeigandi breytingar til að bæta hönnunina
Þegar allt virkar sem skildi er komið að framleiðslu. Ein valmöguleiki er að nota þrívíddaprentara til að prenta út vasann.
Notaðu myndskeiðin hér að neðan þér til stuðnings við að teikna þína hönnun í Tinkercad
Þegar þú ert að meta hugmyndina þína getur verið áhugavert að skoða hana með astoð AR viewer eða viðbótarveruleika. Viðbótarveruleikinn tekur hönnun þína og staðsetur á ákveðinn stað sem þú velur með mydnavélinni þinni. Þannig er raunheimurinn bakgrunnurinn og hönnunin þín sett inn sem sýndarveruleiki.