Verkefnið: PEZ skreyting er fer í gegnum alla þætti hönnunarferils. Nýr eiginleiki er að nemendur byggja skreytinguna sína ofaná PEZ grunn sem þau sækja á heimasíðunni og flytja inn í forritið. Að breyta og bæta hönnun annara er ein nálgun í hönnun og notkunar á tölvustuddum hönnunarforritum. Undir hverjum flipa eru nánar útskýringar sem leiðir nemandann áfram í vinnu sinni.
Áætlaður tími í verkefnið: Fjórar kennslustundir, þar sem hver kennslustundin er 40 mínútur.
Undirbúningur kennara:
· Vera með skissubók fyrir nemendur eða notast við blöð og blýant
· Stofna aðgang fyrir nemendur í Tinkercad
· Hafa innskráningarkóðann sýnilegan
Uppbygging kennslustundar:
· Innlögn kennara
· Nemendur vinna sjálfstætt á meðan kennari leiðbeinir
· Yfirferð, jafningjamat
· Sjálfsmat
Hæfniviðmið úr aðalnámskrá sem tengjast verkefninu:
· Sjá hæfniviðmið úr Aðalnámskrá í töflu hér að neðan
Námsmat:
· Leiðsagnarmat í kennslustund
· Nemendur fylla út sjálfsmatið í lok verkefnisins.
· Jafningjamat í yfirferð
· Loka frammistöðumat þar sem verið er að prófa hæfni nemenda við að beita þekkingu sinni og leikni. Kennari er þannig ekki að meta lokaafurð heldur ferlið í heild sinni.
Yfirferð:
· Við lok verkefnisins er yfirferð þar sem nemendur sýna samnemendum sínum afrek sitt. Nemendur geta sagt frá sínu eigin verki og stuðst þá við grunnþætti og meginreglur hönnunar eða fengið samnemendur til að fara yfir verkið og ræða frekar.
Sjálfsmat:
· Við lok verkefnisins fylla nemendur út sjálfsmat