Hugakort (e. Mind-map) er góð leið fyrir nemendur til að átta sig betur á viðfangsefninu. Markmiðið er að virkja sköpunarkraftinn, finna aðalatriðin og skrá hugmyndir. Mismunandi útfærlsur eru til af hugakortum allt frá stikkorðum yfir í nákvæmar teikninar. Ef nemendur hafa ekki unnið með hugakort áður er hægt að byrja á æfingu.
Æfing:
Kennari segir við nemendahópinn að þau séu hönnunarteymi hjá Ikea. Teymið á að hanna stól en til að átta okkur betur á viðfangsefninu ætla þau að byrja á hugakorti. Kennari byrjar að skrifa STÓLL á töfluna og biður nemendur að koma með eitthvað sem tengist stólum. "Dekk" - gæti einn nemandi komið með. Þá gerir kennarinn strik út frá miðjunni og skrifar - fætur - dekk. Getur svo bætt við og skrifað 2 - 3 - 4 - 6 dekk. Næsti nemandi gæti komið með leður. Þá skrifar kennarinn út frá miðjunni -sessa - áklæði - leður og bætir við - plast - gler - tau. Annar nemandi gæti komið með "drykkjahaldari". Þá skrifar kennari út frá miðjunni - armur - drykkjahaldari og bætir við - stillanlegur - enginn armur o.s.fr. Svona má halda lengi áfram og bæta við hugmyndum.
Næsta skref er að gera hringi í kringum þau orð sem teymið ætlar að vinna með og skrifa þau orð efst á töfluna. Þau orð eru nú orðin skilgreiningin á því sem þið ætlið að hanna. Orðin geta verið t.d - stóll - 6 dekk - leður áklæði - stillanlegt bak
Næsta skref í hönnunarferlinum væri að skissa þrjár mismuanndi hugmyndir sem uppfylla öll þessi atriði.
Nemendur prófa:
Kennari ákveður forskrift. Sem dæmi gæti það verið " standur fyrir spjaldtölvu". Allir nemendur fá A3 blað og skrifa standur fyrir spjaldtölvu í miðju blaðsins. Í framhaldi fá nemendur 3 mínútur til að skrifa eins mikið og þeim dettur í hug sem tengist standinum, líkt og var gert í æfingunni á undan. Þegar tíminn er liðinn, er blöðin látin ganga t.d tvo til hægri, svo allir fái nýtt blað. Á blaðinu, sem er frá samnemenda á að bæta við eins mikið að orðum og hægt er á næstu 2 mínútum. Þegar því er lokið er aftur látið blöðin ganga. Nú á að teikna inn hugmyndir af því sem stendur á blaðinu. Nemendur fá 2 mínútur til að skissa en svo fara blöðin aftur til upprunalegs eiganda. Nú ætti blaðið að vera fullt af hugmyndum sem væri hægt að vinna úr.
Nánari lýsing hvernig búa á til hugakort er að finna hér