Um Fjallafréttir

Skólablaðið Fjallafréttir er samstarfsverkefni unglingastigs Þingeyjarskóla. Verkefnið var sett á laggirnar í febrúar 2023 þegar haldin var starfskynningavika.

Á vefsíðunni má finna upplýsingar og kynningar sem nemendur hafa unnið í kjölfar starfskynninga og fyrirlestra.

Ritstjórn Fjallafrétta samanstendur af öllum 33 nemendum unglingastigs auk fjögurra kennara þeirra.