Á mánudaginn kom Oddur Bjarni í skólann og hélt kynningu fyrir okkur um líf sitt og vinnuferil.
Hann var í grunnskóla hérna í Þingeyjaskòla og fór í framhaldskòla á Laugum. Eftir framhaldsskóla fór hann til Bretlands að læra leikstjórn og vann síðan sem leikstjóri og leikari í framhaldinu, vann svo ýmis störf t.d í grjóthleðslu. Síðan hefur hann verið mikið í tónlist og verið í mörgum hljómsveitum og spilar enn í hljómsveit sem heitir Ljótu hálfvitarnir. Þegar hann var síðan um fertugt fór hann í Guðfræði og starfar sem prestur.
Það sem stóð upp úr fyrir mér var þegar hann sagði það væri í lagi að bera marga hatta og eiga mörg áhugamál og það er allt í lagi að vera ekki búinn að ákveða sig.
"Hvernig hann gat unnið fyrst í leikhúsi í 25 ár og síðan breytt til og orðið prestur"
"Að maður er aldrei fastur í einhverju starfi heldur getur breytt"
"Hann er partur af geggjaðri hljómsveit og hann segir að maður getur borið marga hatta"
"Hann var fjörugur og maður gat tengt við hann"
"Gott að vita að maður geti beðið eins lengi og maður vill með að gera það sem maður vill gera"
"Prófa allskonar hluti og ekki loka á neina valmöguleika"