Námsferð til Hollands

Á skólaárinu 2017-2018 fékk Þelamerkurskóli styrk úr Erasmus+ menntaáætlun Evrópusambandsins til þess að fara í skólaheimsókn og að fylgjast með (e. job shadowing) starfsfólki og kennurum De Wijnberg stofnunarinnar í Venlo í Hollandi.

Sótt var um styrk til að vinna að verkefninu Skipulag náms og stöðluð matstæki. Markmið þess verkefnis er að gera starfsfólk skólans færara en áður í að nýta markvissar matsaðferðir og að læra að skipuleggja nám og kennslu á niðurstöðum mats. Til viðbótar er markmið verkefnisins að kynnast fleiri aðferðum en áður í útikennslu og kennslu list- og verkgreina ásamt því að skoða hvernig nemendur í De Wijnberg skólanum nýta hæfileika sína og sterkar hliðar í náminu.

Til að kynnast fleiri skólum í Hollandi var skólinn Talentencampus einnig heimsóttur.

Myndir, líkön og glærur sem birt eru á síðunni eru birtar með góðfúslegu leyfi starfsmanna skólanna í De Wijnberg og Talentencampus.

Hérna er sagt frá því hvernig hópurinn sem fór í kynnisferðina notaði verkfæri Google til að halda utan um gögn námsferðarinnar svo hægt væri að skrá það sem hópnum fannst skipta máli og líka til að halda utan um lærdóm ferðarinnar, t.d. með þessari vefsíðu.

The webpage is in Icelandic but you can try to use Google Translate to help you to understand the text.