Leirmótun og glerjun
Tímarnir verða kenndir á mánudögum milli kl.13:10 og 14:30.
Unnið verður með leirmótun og glerjun. Einnig verður hægt að vinna með listsköpun, allt eftir því hvar áhugi nemenda liggur.
Kennari: Hrafna Hanna E. Herbertsdóttir
Námsmat:
Unnið er með leiðsagnarmat byggt á hæfniviðmiðum aðalnámskrár fyrir sjónlistir í 8.-10. bekk. Námsmat er byggt á verkum nemenda, vinnubrögðum og hugmyndavinnu.
Hæfniviðmið:
Valið á milli mismunandi aðferða við sköpun, prófað sig áfram og unnið hugmyndir í fjölbreytta miðla, greint og beitt fjölbreyttum aðferðum og tækni.
Gert grein fyrir margvíslegum tilgangi myndlistar og hönnunar og sett hann í persónulegt, menningarlegt og sögulegt samhengi.
Sýnt og útskýrt vinnuferli frá hugmynd að lokaverki sem felur m.a. í sér upplýsingaöflun, tilraunir og samtal.
Gagnrýnt af þekkingu, sanngirni og virðingu eigin verk og annarra bæði einn og í samvinnu.
Túlkað listaverk og hönnun með tilvísun í eigin reynslu, nærumhverfi, samtímann, siðfræði og fagurfræði.