vegasalt, ramba, rambelta, rambalta
vegasalt, ramba, rambelta, rambalta
Leiktækið á myndinni hér til vinstri heitir vegasalt í hugum flestra landsmanna. Í Bolungarvík er hins vegar rambað á römbunni og í Hafnarfirði nefnist leiktækið ýmist ramba, rambelta eða rambalta.
Kort með svörum um hvað leikurinn sjálfur nefnist má finna hér.
Sjá einnig
Af hverju segja Hafnfirðingar „að ramba“ í staðinn fyrir „að vega salt“? (2011). Vísindavefurinn. http://www.visindavefur.is/svar.php?id=59326