innstunga, stingdós
innstunga, stingdós
Ljóst er að langflestir nota orðið innstunga um það sem sjá má á myndinni hér til vinstri en sumir þátttakendur nefndu einnig orðið tengill. Að minnsta kosti virðist afar fáir tala um stingdós nú til dags, en aðeins tíu manns merktu við það svar. Allir nema einn eru frá Vestfjörðum og það rímar við þær takmörkuðu heimildir sem til eru um orðið.