Velkomin á Málspor
Velkomin á Málspor
Málspor er vefsíða verkefnisins Staðbundinn orðaforði í nútímaíslensku. Markmiðið með verkefninu er að safna gögnum um staðbundinn orðaforða í nútímaíslensku og miðla þeim með aðgengilegum hætti. Breytileiki í orðaforða eftir landsvæðum er vel þekkt og áhugavert fyrirbæri sem vert er að rannsaka betur.

Hver og einn getur lagt sitt af mörkum með því að svara könnuninni hér að neðan, en þar eru þátttakendur spurðir út í málnotkun sína og þeir beðnir um að veita helstu bakgrunnsupplýsingar. Gagnasafnið er notað til að búa til gagnvirk landakort þar sem sjá má dreifingu svara eftir uppruna þátttakenda.

Vefkönnunin verður opin um ókomna tíð og kortin, sem eru uppfærð reglulega, munu því gefa sífellt betri mynd af dreifingu og tíðni ólíkra orða á landinu. Von er að niðurstöður verkefnisins nýtist jafnt almennu áhugafólki um íslensku, nemendum og fræðimönnum.

Verkefnið hlaut styrk úr Styrktarsjóði Áslaugar Hafliðadóttur árið 2025 og umsjónarmaður þess er Ása Bergný Tómasdóttir. Fyrirmynd verkefnisins er breska vefsíðan Our dialects.