tagl, stertur
tagl, stertur
Þegar hár er bundið upp með teygju líkt og sjá má á myndinni er ýmist talað um að setja hárið í tagl eða stert. Langflestir nota orðið tagl en eins og kortið sýnir er stertur einkum notað á Norðurlandi þótt það finnist víða annars staðar. Þónokkrir þátttakendur segjast nota orðin til skiptis.