skæri, blað, steinn
skæri, blað, steinn
Sennilega þekkja flestir til leiksins sem sjá má á myndinni hér til vinstri. Við upphaf hverrar umferðar er talið niður með því að telja upp þau fyrirbæri sem þátttakendur geta valið um að mynda með hendinni: blað, stein eða skæri. Fólk telur þessi fyrirbæri upp í ólíkri röð og kallar leikinn þar af leiðandi ólíkum nöfnum.
Þessi fyrirbæri má telja upp á sex mismunandi vegu og tveir þriðju svarenda kjósa röðina skæri, blað, steinn. Hinir fimm kostirnar hafa allir einhvern fylgjendahóp og erfitt er að greina nokkurt mynstur í landfræðilegri dreifingu svara.