púki
púki
Um 13% þátttakenda svöruðu eftirfarandi spurningu játandi: Myndir þú einhvern tímann segja þegar ég var púki í merkingunni þegar ég var krakki/barn? Líkt og sjá má á kortinu eru jákvæðu svörin dreifð um allt land en þau er þó þéttust á Vestfjörðum. Þar er vel þekkt að nota orðið púki um krakka og í því samhengi er merking orðsins hlutlaus. Einn þátttakandi bendir á bókina Púkarnir á Patró og annar minnist þess að krakkar voru ýmist nefndir innhúsapúki og úthúsapúki eftir því hvar þeir bjuggu í bænum. Orðið púki hefur neikvæðari blæ víðast hvar annars staðar og margir þátttakendur utan Vestfjarða nefna að þeir myndu ekki nota orðið á hlutlausan hátt.