vega salt, ramba, rambelta, vippa
vega salt, ramba, rambelta, vippa
Flestir myndu segja að börnin á myndinni hér til vinstri væru að vega salt. Sú orðanotkun tíðkast um allt land en í Hafnarfirði er langalgengast að ramba (eða rambelta). Þegar þysjað er inn á höfuðborgarsvæðið er merkilegt að sjá hve skýr mörkin milli Hafnarfjarðar og hinna sveitarfélaganna eru. Ekki er síður áhugavert að á einum öðrum stað á landinu ramba flestir bæjarbúar, nefnilega í Bolungarvík. Spottakorn í burtu, á Ísafirði, er aftur á móti vippað.
Kort með svörum um hvað leiktækið sjálft nefnist má finna hér.
Sjá einnig
Af hverju segja Hafnfirðingar „að ramba“ í staðinn fyrir „að vega salt“? (2011). Vísindavefurinn. http://www.visindavefur.is/svar.php?id=59326