nærbuxur, brók
nærbuxur, brók
Flestir nota orðið nærbuxur um flíkina á myndinni hér til vinstri. Orðið brók er þó líka talsvert notað og kjarnasvæði þess eru Norðurland og Austurland. Sumir segjast hafa byrjað að nota orðið brók eftir að hafa búið í þeim landshlutum en einnig eru til dæmi um að fólk úr þessum landshlutum hafi hætt að nota orðið eftir að hafa flust annað. Enn aðrir nota orðin til skiptis og sumir svarendur bentu á önnur heiti yfir þessa flík, t.d. nærur, nöllur og naríur.