skoppa, boppa
Það er einna helst á Norðurlandi sem sögnin boppa er notuð og talað er um bopparabolta. Á Norðurlandi tíðkast þó líka að skoppa skopparabolta, rétt eins og fólk víðast hvar annars staðar á landinu gerir.