tuska, rýja, drusla
tuska, rýja, drusla
Langflestir nota orðið (borð)tuska til að lýsa því sem er á myndinni hér til vinstri. Orðið (bekkja)tuska er þó líka notað og (bekkja)rýja sömuleiðis, en þau vísa til orðsins eldhúsbekkur (sjá hér) sem Norðlendingar og Austfirðingar nota mikið. Það kemur því ekki á óvart að (bekkja)tuska og (bekkja)rýja finnist einkum á Norðurlandi og Austurlandi.