eldhúsbekkur
eldhúsbekkur
Spurt var: Myndir þú nota orðið eldhúsbekkur um eldhúsinnréttinguna/vinnuaðstöðuna á þessari mynd? Tveir þriðju þátttakenda svöruðu spurningunni játandi og kortið sýnir að orðið eldhúsbekkur er notað um land allt. Hlutfall jákvæðra svara er þó áberandi hæst á Norðurlandi og Austurlandi. Sumir segjast vissulega nota orðið eldhúsbekkur en þá um bekk sem setið er á við eldhúsborð. Aðrir segjast hafa tekið upp orðið eldhúsbekkur þar sem það sé ruglandi að kalla bæði vinnuaðstöðuna og borðið sem matast er við eldhúsborð.