Ég vil minnka flugeldanotkun vegna þess að hún mengar umhverfið. Mengunin er líka slæm fyrir plönturíkið og dýraríkið. Með því að sprengja flugelda þá koma mörg eiturefni í loftið sem við öndum síðan að okkur. Komum í veg fyrir það!
Gamalt fólk, ungabörn og þeir sem viðkvæmir eru í öndunarfærum anda þessu lofti síðan að sér og það getur skaðað þau. Flugeldasprenging skilar líka miklu rusli á víð og dreif um landið sem fáir tína upp. Hávaðinn getur verið mikill og hræðir sum dýr. Dýrin halda jafnvel að flugeldaruslið sé matur og borða það og geta auðvitað dáið af eiturefnunum. Hver vill það?
Lausnin mín á þessu vandamáli er að björgunarsveitin haldi flugeldasýningu þar sem allir geta síðan komið til að horfa á. Þar með kaupa færri flugelda og ruslið dreifist ekki út um allt. Síðan fær björgunarsveitin sjálfboðaliða sem fá hreina náttúru fyrir að hjálpa til við að tína ruslið upp.
Selma Ösp