Í þessari ritgerð verður fjallað um loftmengun sem bílar valda og leiðir til þess að minnka hana.
Í heiminum er talið að um 54% jarðarbúa búi í borgum eða um 4 milljarðar manna (KrakkaRúv, birt 23. apríl 2021) . Ástæðan fyrir því að flestir vilja búa í borgum er sú að þar er öll þjónusta svo nálæg, eins og til dæmis menntun, heilbrigðisþjónusta og margskonar verslanir. Þar eru einnig fleiri og fjölbreyttari atvinnutækifæri. Vandamálið við það er að það keyra margir á bensínbílum og það veldur mikilli loftmengun. Loftmengunin hefur skaðleg áhrif á náttúruna, veldur hlýnun jarðar og þar með bráðnun jökla og hækkunar sjávarmáls. Það getur þýtt að sumar borgir sökkva. Þá er loftmengunin slæm fyrir hjarta- og æðakerfi fólks og þá sem eru með viðkvæm lungu.
Til að draga úr loftmengun þarf fólk í auknum mæli að nota rafmagnsbíla og/eða almenningssamgöngur. Þá getur fólk einnig gengið meira eða hjólað, sem er jafnframt gott fyrir heilsu fólks og gerir það hamingjusamara. Mannfólk á covid-tímabilinu þurfti oftast að vera einangrað. Það varð til þess að fólk fór minna um og það dró úr loftmengun. Þetta þýðir að hægt er að minnka loftmengun með því að breyta ferðavenjum okkar.
Áætlanir gera ráð fyrir að árið 2050 muni um 66% jarðarbúa búa í borgum, eða 6,5 milljarðar manna (KrakkaRúv, birt 23. apríl 2021). Það þýðir að loftmengunin verði enn verri ef ekkert er að gert. Þess vegna verðum við að reyna að breyta þessu með því að nota vistvæna ferðamáta. Ungt fólk á skilið að fá jafn mörg tækifæri og eldra fólk hefur fengið. Við verðum því að breyta þessu til þess að framtíðin sé bjartari fyrir alla.
Bryndís Emilía, 7. bekkur