Eldgos eru náttúruhamfarir þar sem kvika, gosgastegundir og gjóska brjótast upp á yfirborð jarðar úr iðrum hennar. Á Íslandi eru meira en 30 virk eldfjallakerfi sem gjósa reglulega vegna staðsetningar á flekaskilum. Fólk getur komist í snertingu við skaðleg efni frá eldgosum með því að anda lofttegundum að sér eða að svifryk snerti húð og augu.
Áhrif lofttegundanna og svifryksins á heilsu eru allt frá vægum einkennum til alvarlegra. Einstaklingar geta greint frá öndunarerfiðleikum og kláða í húð. En stundum geta áhrifin verið banvæn.
Frá eldgosum kemur gjóska/aska og öskufallið getur orðið svo mikið að það verður myrkur um bjartan dag í námunda við eldstöðina. Fólk sem er viðkvæmt finnur greinilega fyrir ösku í öndunarfærum en í miklu öskufalli finnur heilsuhraust fólk einnig fyrir óþægindum í öndunarfærum og augum. Öskuskýið getur stigið svo hátt að það getur truflað flugsamgöngur.
Gjóskan frá eldstöðvum mengar gróður og vatn og eru grasbítum verulega hættuleg. Öskukornin eru ofursmá og oddhvöss og valda særindum í augum, öndunarfærum og meltingarveg. Flúormengunin stuðlar að kalkskorti og flúoreitrun gerir dýrum erfiðara með að bíta, tyggja og jórtra. Þá geta beinin í dýrunum líka skemmst, sérstaklega í fótleggjum og þau haltra.
Þegar eldgos hefst þá er gerð gjóskuspá, sem segir til um hvert gjóskan berst og þá er flugumferð beint frá gjóskuskýinu. Einnig er almenningur upplýstur um hættuna t.d. í útvarpi, sjónvarpi og samfélagsmiðlum. Mikilvægt er að farið sé vel eftir varnaðarorðum Almannavarna því við getum ekki stjórnað náttúrunni en við getum lært að bregðast rétt við náttúruvá.
Til þess að verjast gjóskunni getur maður:
Lokað hurðum og gluggum.
Sett rakt handklæði við opnanlega glugga og dyr.
Ef maður þarf út ætti að nota vasaklút yfir nef og munn en best er að nota gasgrímu.
Passað að dýr komist í hreint vatn og gróður.
Varið viðkvæm raftæki.
Aftengt rör frá þakrennum.
Við hvetjum alla til að kynna sér nánar viðbrögð við eldgosum á vefsvæði Almannavarna en þar fundum við þessar upplýsingar.
Gyana og Hrönn