Ég vil minnka notkun bensínbíla af því að þeir menga umhverfið. Loftmengun frá bensínbílum hefur slæm áhrif á andrúmsloftið og er ekki góð fyrir plöntur og dýr. Þess vegna finnst mér að allir ættu að hætta að nota bensínbíla.
Eitt af heimsmarkmiðum sameinuðu þjóðanna er að efla aðgerðir í loftslagsmálum. Flestir bílar eru knúnir af bensíni og útblástur frá bensínbílum er einn helsti orsakavaldur gróðurhúsalofttegunda sem myndast af mannavöldum. Gróðurhúsalofttegundir valda því að hitastig jarðar fer sífellt hækkandi og er farið að valda hættulegum veðurfarsbreytingum á jörðinni. Bensínframleiðslan fyrir alla þessa bíla er líka gríðarstór mengunarvaldur og eyðir náttúruauðlindum jarðar. Náttúruauðlindir jarðar eru takmarkaðar og því skiptir miklu máli að passa upp á þær.
Það er augljóst að ef mannfólkið hættir að keyra um á bensínbílum þá bæði verndum við náttúruauðlindirnar og drögum úr gróðurhúsalofttegundum í andrúmsloftinu, sem bætir lífið fyrir allt lífríkið. Ég vil því skora á alla til að hætta að keyra á bensínbílum.
Laufey Björk