Við þurfum að banna notkun flugelda um áramót út af loftmengun.
Flugeldar menga andrúmsloftið sem er slæmt fyrir náttúruna. Ef við hættum að nota flugelda þá verður minni loftmengun, færra fólk veikt og lífsskilyrði lífvera betri.
Til að gera það þurfum við fyrst að láta fólk vita að flugeldar eru skaðlegir fyrir náttúruna. Það getum við gert með því að upplýsa fólk um það með að setja upplýsingar inn á netið. Fólk þarf að vita hvaða áhrif það hefur á náttúruna þegar það skýtur upp flugeldum á gamlárskvöld.
Í staðinn fyrir að nota flugelda getum við hvatt fólk til að gera annað í staðinn eins og hafa ljósasýningu í hverju sveitarfélagi, hittast í heimahúsum eða hafa risastóran viðburð í einhverri af stóru höllunum okkar eða á útivistarsvæði.
Við þurfum öll að huga að því hvernig okkar aðgerðir hafa áhrif á Jörðina. Að hætta að skjóta upp flugeldum hefur áhrif, - margt lítið gerir eitt stórt.
Kári og Róbert
Heimild: https://loftgaedi.hi.is/flugeldar
Höfundur myndar er Matthias Schüssler og hún er á https://www.visindavefur.is/svar.php?id=10297