Nemendur í 7. bekk í Hvassaleitisskóla fjölluðu um mikilvægi heilnæms lofts og skrifuðu síðan um loftgæði. Þeir áttu í skrifum sínum að beita algengustu hugtökum og heitum í náttúruvísindum sem tengjast loftgæðum og voru hvattir til að vera sannfærandi í skrifum sínum.
Í upplýsingamennt lærðu nemendur að gera heimasíðu og á hana fóru öll skrif nemenda. Allir þurftu að takmarka skrif sín og tengja þau við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Hér á síðunni má finna textaskrif sem tengjast þriðja markmiðinu um heilsu og vellíðan, því tólfta um ábyrga neyslu og framleiðslu, því þrettánda um aðgerðir í loftlagsmálum, því fjórtánda sem tengist lífi í vatni og því fimmtánda sem tengist lífi á landi.