Ég vil bæta hreinsunarbúnað á verksmiðjur og farartæki. Börn alast upp í mikilli loftmengun og mér finnst að allir eigi rétt á því að anda að sér hreinu andrúmslofti.
Farartæki og verksmiðjur er stór ástæða fyrir loftmengun og hlýnun jarðar. Það er ljóst að notkun bensín- og díselvéla sem eru algengar í farartækjum og verksmiðjum hefur alvarlegar afleiðingar fyrir náttúruna og heilsu fólks.
Hér fyrir neðan eru dæmi um nokkur mikilvæg atriði sem útskýra hvers vegna farartæki og verksmiðjur eru slæm fyrir umhverfið.
Farartæki brenna jarðefnaeldsneyti sem losa koltvísýring og eiturefni út í andrúmsloftið.
Verksmiðjur losa eiturefni í andrúmsloft, sjó, vatn, jarðveg eða grunnvatn sem fólk síðan drekkur.
Loft og vatn eru stöðugt á hreyfingu og tengjast í hringrás vatns og því getur mengunin farið víða.
Koltvísýringurinn hitar jörðina og eiturefnin skaða náttúruna, lífverurnar og umhverfið. Hringrás vatns gerir það að verkum að mengun einnar þjóðar getur rignt niður á land annarrar þjóðar.
Koltvísýringurinn hitar jörðina og eiturefnin skaða náttúruna, lífverurnar og umhverfið. Þar sem loft og vatn eru stöðugt á hreyfingu og tengjast í hringrás vatns dreifist mengunin víða. Ef þjóð mengar gæti mengun hennar ringt niður á land annarrar þjóðar.
Heilsan er það mikilvægasta sem við eigum. Hvernig við göngum um náttúruna hefur áhrif á allt líf á Jörðinni. Við eigum bara eina Jörð og við verðum að hreinsa upp eftir okkur ef hún á að duga komandi kynslóðum. Svo hættum að menga og það strax!
Dalrós María