Af hverju eru bílar, skip og flugvélar að skemma loftið okkar!?
Af hverju eru bílar, skip og flugvélar að skemma loftið okkar!?
Mynd Kristins Magnússonar sótt af
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2021/04/06/mengun_i_borginni_maelt_med_thvi_ad_hvila_bilinn/
Bensínbílar menga mjög mikið. Það er betra fyrir umhverfið að eiga rafmagnsbíl því að það er ódýrara í rekstri og þá þarf ekki að kaupa eins mikið af olíu frá öðrum löndum. Við eigum líka íslenska orku sem við ættum að fara vel með. Það er betra ef við tökum strætó oftar svo við notum ekki eins marga bíla. Síðan er líka rosalega gott að hjóla því það er betra fyrir heilsuna og umhverfið.
Mynd Sigurðar Boga sótt af https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/08/14/tvaer_flugvelar_ernis_ur_leik/
Flugvélar eru mikið notaðar í dag, en það er eitt vandamál. Flugvélar menga mikið og setja koltvíoxíð/CO2 út í loftið. Það hefur mikil áhrif á hlýnun jarðar og getur valdið t.d. enn öflugri náttúruhamförum, hækkun sjávar og fólksflutningum. Það er mjög vont! Á hverju ári eykst flug á milli landa og það þýðir að þetta vandamál vex sífellt meir.
Sumir segja að flug sé mikilvægt því þá geta þeir farið til útlanda. Auðvitað er flug mikilvægt til að koma til okkar nauðsynjavörum og flytja sjúklinga en það eru forréttindi að ferðast til annarra landa. Ættum við ekki að fækka flugferðum og bíða eftir umhverfisvænni flugsamgöngum?
Mynd Þorgeirs Baldurssonar sótt frá https://www.mbl.is/200milur/skipaskra/skip/2212/
Mengun frá skipum eru áberandi í heiminum í dag. Skip eru notuð til að flytja vörur og fólk milli landa, sem er mikilvægt fyrir fólk, en á sama tíma menga þau mikið. Þau brenna oft olíu eins og flugvélar. Mengunin sem skip valda er of mikil og við þurfum að gera eitthvað í því. Það er ekki rétt að skaða náttúruna. Mengunin getur skaðað lífríki sjávar og líka haft áhrif á loftslagið. Ef við gerum ekkert gæti þetta orðið miklu verra í framtíðinni. Allir eiga rétt á hollu sjávarfangi, hreinu lofti og sömu lífsgæðum og við.
Anna, Eydís og Katrín