Ég vil útrýma reykingum vegna þess að reykingar geta haft slæm áhrif á líkamann og umhverfið. Mér finnst að allir eigi rétt á því að anda að sér hreinu lofti. Mér finnst líka að það eigi að fækka búðum sem selja sígarettur og að það ætti að selja þær í apóteki undir ströngu eftirliti.
Margir fá sjúkdóma út af reykingum en það styttir lífið að reykja. Að reykja mengar líka mikið umhverfið. Margir henda sígarettum út í umhverfið og þá er hætta á því að dýr borði þær og að börn finni þær og setji þær upp í sig sem er mjög hættulegt.
Fólk sem er veikt getur stundum ekki stigið út úr húsi út af loftmengun. Reykingar stuðla að loftmengun og skaða heilsuna. Mér finnst algjör óþarfi að leyfa þær. Við verðum að sýna ábyrgð og vernda lífríkið. Útrýmum reykingum!
Hrafntinna Líf Hjaltadóttir.
Ég fékk myndina á No Smoking Prohibition Sign PNG Clipart - Best WEB Clipart