Fyrst þeyta eldfjöllin upp ösku og svörtu lofti og síðan hrauni. Þegar eldgosið byrjar er hraunið heitt og mismunandi fljótandi en síðan harðnar það. Eldgos getur varað í mislangan tíma, allt eftir eldfjallinu. Sum eldgos standa yfir í nokkrar klukkustundir en önnur í einhver ár.
Ísland er frægt fyrir fjöldan allan af eldstöðvakerfum. Grímsvötn er virkasta íslenska eldstöðin. Þar hafa orðið mjög mörg eldgos á sögulegum tíma. Nokkrar eldstöðvar má finna nálægt höfuðborgarsvæðinu. Ef ég man rétt hafa átta eldgos átt sér stað á Reykjanesskaga, nálægt Grindavík bara síðustu rúm tvö árin. Ég tók myndina hér við hliðina af eldgosi í Sunhnúk 20. nóvember 2024.
Loftmengun fylgir oft eldgosum og skipta veðurskilyrði þá miklu, sérstaklega vindátt og úrkoma. Sterkari vindar bera loftmengunina lengra en lognið lætur hana liggja í lautum og dældum í landslaginu. Ef ekki hefur rignt lengi er hætt við að gróðureldar verði og stafar líka loftmengun af þeim. Eldgosið í Eyjafjallajökli lamaði flugumferð í Evrópu fyrir að verða tuttugu árum og loftmengun af völdum Skaftárelda seint á 18. öld veikti fólk í Evrópu.
Við gos losnar mikið magn af lofttegundum eins og brennisteinsdíoxíði , koltvíoxíði og öðrum efnasamböndum sem eru hættulegar lífríkinu. En eldgos eru líka hættuleg sökum margra annarra þátta eins og jarðskjálfta, jökulhlaupa, hrauns, gróðurelda og fleira. Þetta má líka sjá í S- Ameríku þaðan sem ég á ættir að rekja.
Við getum ekki hamið eldgos og loftmengunina frá þeim en mikilvægt er að vita hvernig bregðast á við mikilli loftmengun frá eldgosum. Á vef Almannavarna er hægt að lesa sér til um réttu viðbrögðin. Hér fyrir neðan eru aðeins nefnd þau sem skipta máli til að menn fái andað að sér sem hreinustu lofti:
Loka hurðum og gluggum og þétta þá ef þörf krefur.
Setja rök handklæði á tröppur og önnur svæði til að koma í veg fyrir að askan berist inn.
Halda sig inni á meðan á öskufalli stendur.
Nota grímu, trefil eða föt sem hylja nef og munn og augnhlífar ef maður verður að fara út.
Úti þarf maður að halda sig þar sem vindur blæs og varast lægðir í landslagi því gas er oftast ósýnilegt, lyktarlaust og getur verið banvænt.
Þessar ráðstafanir geta hjálpað til við að halda heilsu í eldgosi. Það er mikilvægt að vera undirbúin/nn og fylgja fyrirmælum Almannavarna til að vernda sjálfan sig og fjölskyldu sína.
Paula