Söngkeppni Grunnskóla Húnaþings vestra 2026 var haldin í gær, fimmtudaginn 26. febrúar. Keppnin var í fyrsta sinn haldin í matsal skólans og þótti takast mjög vel til.
Alls kepptu 12 atriði í keppninni, níu atriði í yngri flokki og þrjú atriði í eldri flokki. Sigurvegari yngri flokks var Almar í 5. bekk með lagið "Fjöllin hafa vakað" með Egó. Sigurvegari í eldri flokki var Emelía Íris í 10. bekk með lagið "I Have Nothing" sem var upprunalega flutt af Whitney Houston.
Hægt er að horfa á keppnina með því að ýta á myndina hér til vinstri.