Söngkonan, tónskáldið og Grammy-verðlaunahafinn Laufey Lín Bing Jónsdóttir prýðir nú auglýsingaskilti í Palm Springs í Kaliforníu. Það eitt og sér er nú ekki svo ýkja fréttnæmt, nema kannski fyrir það að söngkonan er ekki að auglýsa tónleika, nýja plötu eða annað þessháttar.
Auglýsingaskiltið hvetur áhugasama til að heimsækja nýja vefsíðu, SayLaufey.com, en þar eiga aðdáendur söngkonunnar og aðrir áhugasamir að geta lært að bera nafn hennar rétt fram.
Á skiltinu er mynd af Laufeyju með tárin í augunum og eftirfarandi texti: „Still struggling with my name? Visit SayLaufey.com to learn“ sem má þýða á íslensku sem: „Ertu enn að baslast við að segja nafnið mitt? Kíktu á SayLaufey.com til að læra“.
(frétt fengin af mbl.is)