Nemendur í 7. bekk fjölluðu um mikilvægi heilnæms lofts og skrifuðu um loftgæði. Þeir áttu að beita algengustu hugtökum og heitum í náttúruvísindum sem tengjast loftgæðum. Þeir voru hvattir til að vera sannfærandi í skrifum sínum.

Í upplýsingamennt lærðu nemendur að gera heimasíðu og á hana fóru öll skrif nemenda. Allir þurftu að takmarka skrif sín og tengja þau við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Endilega lesið skrif nemendanna, sumir benda á lausnir á vanda heimsins.